Verðrið hérna er frábært í dag. Það snjóaði alveg heilan helling í gær, en í dag er hitinn um frostmark og sólin skín í heiði og nær enginn vindur!
Ég vildi að ég þyrfti ekki að þvo þvott, því að þá myndi ég fara í göngutúr. En það er kannski eins gott að ég haldi mig inni þar sem ég er alveg að drepast úr kvefi.
Ég er að fara með Loru seinnipartinn til New Jersey, en hún er að passa hús og hund fyrir einn af prófessorum okkar um helgina. Við ætlum að verja kvöldinu í heita pottinum hennar og elda góðan mat og á morgun ætla Adelene og Emily að koma með okkur í gönguferð á Palisades stígnum góða.
Ég tók líka nokkrar skandinavískar vídejóspólur og DVD diska á leigunni áðan, mér fannst það eitthvað svo tilvalið, að kynna skandinavíska kvikmyndamenningu fyrir vinkonum mínum um helgina. Myndirnar sem ég tók eru Mifunes sidste sang, Idioterne og svo Fucking Aamal, en sú síðastnefnda er eini titillinn sem ekki hefði þurft að þýða fyrir á ensku, en það er samt gert, því Fucking Aamal er ekki alveg nógu sivíliseraður titill fyrir Kanann. Hún heitir Show me love á ensku. Mér finnst sá titill alls ekki passa og vera algerlega úr takt við myndina. En hvað um það.......
Kominn tími til! Einar Mar er farinn að blogga, en hann er einmitt í feðraorlofi þessa dagana og virðist vera að njóta þess í tætlur.
Annars kíki ég alltaf reglulega á heimasíðuna hennar Sollu dóttur Einars og Þyríar, mér finnst svo stutt síðan hún fæddist en hún er orðin ekkert smá stór! Og örugglega enn stærri núna en á þessum myndum, þar sem að þær eru frá því um jólin! Svona missir maður nú af miklu þegar maður er í útlöndum.