Jessöríbab. Það heppnaðist. Fann færslu á Support Forum MT. Einar Örn hafði greinilega lent í því sama og ég og spurt ráða... Þannig að ég bara hermdi.
Þannig að núna má sjá hlekk hér til hægri á síðunni sem vísar á færslu sama dags fyrir ári síðan. Ég ætlaði að setja þetta upp á eins árs bloggafmæli okkar í byrjun nóvember, en hef hreinlega ekki nennt að breyta neinu hér. Hef einfaldlega meira gaman af því að pæla í sameindalíffræði og fara út með vinum mínum en að spá í html og perl kóða.
Fyrst að ég sit hér heima með kverkaskít og hor í nös og hef ekkert betra að gera ákvað ég að fara í endurbætur á blogginu. Eins og er gengur það ekki nógu vel, ég er að reyna að setja inn hlekk hér á spássíuna sem vísar í færslu á sem skrifuð var á sama degi fyrir ári síðan. Þannig að hér til hægri ætti að koma hlekkur á færslurnar sem voru skrifaðar þann sjötta mars árið 2002, en í staðin fæ ég bara hlekki á færslur undanfarinna tveggja vikna. Ég er ekki alveg að fatta hvað er í gangi, ég setti plugin-ið á réttan stað og svona. Kannski ég þurfi að laga skjalasöfnin mín eða eitthvað....
Ég notaði plugin frá Brad Choate en bara fæ það ekki til að virka rétt.