Haldið þið ekki bara að Mörður elskan hafi sent mér blóm í dag! Oh.. hann er svo mikið krútt. Gvuð, ég bjóst sko ekki við því. Risastór og flottur blómvöndur! Hann Mörður kann sko alveg að gleðja mig þegar það er eitthvað rugl í gangi!
Jæja, ætli maður verði ekki að segja frá hvað er búið að vera í gangi hérna hjá mér undanfarna daga. Ég veit að minnsta kosti að þeir Kólumbíunemar sem að lesa síðuna eru farnir að geta í eyðurnar!
Málið er að fyrir nær tveimur vikum síðan sannfærðist ég endanlega um að verkefnið mitt væri ekki að ganga upp. Þá fór ég að hugsa mig vel um hver framtíð mín væri á rannsóknarstofunni og komst að því að ef að ég yrði áfram á henni tæki það mig örugglega nokkur auka ár að ná settu takmarki; doktorsgráðunni. Ég hefði svo sem átt að vera búin að sjá það mikið fyrr, en svona er maður nú vitlaus! Ekki það að ég sé fúl út í neinn á labbinu mínu, eða neitt þannig, þetta er allt í góðu, en ég þarf bara leiðbeinanda sem hefur tíma til að sinna mér.
í augnablikinu er ég því atvinnulaus. Á ekki heima á neinu labbi, þannig að ég er meira heima en áður. En ég segi bara eins og einhver góður Íslendingur sagði einhvern tíman: Þetta reddast alltsaman!