Ásta systir var að segja mér að mér hefði brugðið fyrir í myndinni um Ham sem var sýnd í sjónvarpinu heima á sunnudaginn. Kemur mér svosem ekki á óvart.
Ég man líka eftir þessu afmæli sem hún Hel talar um. Ég var bara sextán og fannst svaka kúl að mæta í afmæli Ham með strákunum í Sororicide. Hahahaha.. ég man samt ekkert eftir að hafa séð Hel þar, það eina sem ég man er að Sigurjón endurtók bara orðið rennibraut í stað hefðbundinna texta við lögin sín... Rennibraut aha, rennirennibraut.. rennirennirennibraut (syngist með laglínu Voulez Vouz).
Já, í þá gömlu daga. Mikið er ég annars fegin að vera ekki lengur sextán.