Mánudagur, 3 mars, 2003
Umhleypingasamt

Dagurinn í dag var vægast sagt óvenjulegur og skrýtinn. Stress, breytingar sviptingar og læti. En hvað um það. Þetta reddast allt einhvern veginn. Eins gott að eiga góða vini. Lora er búin að vera þolinmóðasta kona í heimi við mig undanfarið.

Tékkið annars á blogginu hennar. Hún er líka komin með svona teljara sem telur niður dagana þangað til að kærastinn hennar kemur aftur til New York!

Ég fór heim til Loru seinnipartinn og við keyptum í matinn og ég eldaði svaka góðan indverskan karrýrétt. Adelene kom líka í matinn og við sátum og spjölluðum. Svaka næs. Við erum að fara að passa upp á hús eins prófessors í deildinni um helgina og í leiðinni ætlum við að fara í göngutúr á Palisades stígnum góða. Ég hlakka til...

Posted by erna at 10:24 EH