Tjæjah.. ég er búin að sitja heima mestalla helgi með stíflað nef og lesa vísindagreinar. Kvef þessa vetrar hefur knúið að dyrum og ekkert annað að gera en að bíða eftir að það gangi yfir.
Annars fór ég með Binnu áðan suður í Quad cinema. Við sáum hollensku myndina Sus & zo. Mæli með henni, þetta er svona eiginlega pínu rómantísk kómedía með evrópsku vandamálaívafi. Kærkomin tilbreyting eftir að hafa bara horft á amerískar bíómyndir í langan tíma.
Núna er ég aftur komin heim, tilbúin í slaginn, byrjuð að lesa aftur og búin að taka vænan slurk af hóstamixtúru. Ullabjakk. Könum finnst lakkrísbragðið af hóstamixtúrum svo vont að þeir blanda í þær kirsuberjabragði eða einhverju þannig. Mér finnst persónulega ekkert að bragðinu af venjulegum hóstamixtúrum, en samblandið af lakkrísbragði og kirsuberjabragði er hreint afleitt. Með þeim orðum býð ég góða nótt.