Föstudagur, 28 febrúar, 2003
Kverkaskítur

Djammið í kvöld fór fyrir lítið, ég er eitthvað slöpp, örugglega að fá kveffjanda eða eitthvað, þannig að ég hangi bara hérna við skrifborðið við skemmtilegustu iðju allra tíma, að fara yfir próf.

Ég er reyndar svakalega heppin af því að það er nýr kennari í þessu fagi og hún fer yfir helminginn af öllum prófunum á móti mér. David þurfti að fara yfir allt sjálfur í fyrra. Fjúkk.

Ég tók mér nú samt smá pásu áðan og horfði á Baywatch! Hahah.. minnir mig eiginlega bara á Mörð. En, það minnir allt mig á Mörð þessa dagana. Ó hvað ég hlakka til eftir 154 daga! Núna er líka þátturinn The Senator í sjónvarpinu. Ágætis afþreying allt saman....

Posted by erna at 08:47 EH