Ég fór út með liðinu í deildinni minni áðan ásamt öllum krökkunum sem deildin mín bauð í viðtöl um helgina. Um þetta leitið eru nefnilega flestir bandarískir skólar að taka krakka í viðtöl fyrir doktorsnám næsta vetur.
Líffræðideildirnar hér eru svo rausnarlegar að þær bjóða fólki sem þær vilja fá í nám, í heimsókn, borga flugfarið, gistingu, mat und alles. Það er nefnilega svaka slagur um að fá góða líffræðinema og það eru yfirleitt sömu stúdentarnir í viðtölum allstaðar. Reyndar er deildin mín ein af fáum sem býður ekki erlendu stúdentunum líka, en það eru svo margir umsækjendur hér af því að skólinn er í New York.
Þannig að næstu daga verð ég sennilega að djamma með vinum mínum og svo verðandi samnemum.
Þegar ég kom heim rétt í þessu og hengdi þumalputtann í buxnastrenginn, fann ég þar 1 mL túpu af fúkkalyfinu ampicillin, sem ég hafði stungið í buxnastrenginn til þess að þýða áður en ég setti það út í bakteríuræktina mína. Þetta þýðir víst að ræktin er ónýt fyrst að ég setti ekkert ampicillin í hana og því verður ekkert plasmíð einangrað á morgun. Fjúkk, ég er bara fegin, því þá hef ég afsökun fyrir því að vera bara heima að lesa í staðin fyrir að spandera hundrað dollurum af peningum rannsóknarstofuna í DNA einangrun sem sennilega verður ekki til neins.
Annars fór ég út í Harlem áðan að borga rafmagnsreikninginn minn. Ég fór nefnilega yfir á tékkheftinu og tékkinn til Con Edison var endursendur og þess vegna voru þeir að hóta mér að ég þyrfti að borga þeim áttatíu dollara í tryggingu. Þetta er svo gamaldags hér, allir reikningar borgaðir með tékkum í pósti. Ég áttaði mig ekki alveg, vön netbankanum heima og svona og yfirdró reikninginn. Ah.. þetta var svo mikið þægilegara þegar Mörður sá um þessi mál! Þegar ég hringdi í Con Ed var mér sagt að ef ég mætti á staðinn og borgaði með reiðufé í dag fengi ég séns og þyrfti ekki að borga tryggingu. Þessir öðlingar. Og í staðinn fékk ég mér göngutúr á 125 stræti.
Fyrir um tíu árum síðan hefði hvít manneskja víst ekki hætt sér inn á þetta svæði, og það voru nú ekki margir hvítingjar sem ég sá á göngunni. Í dag er gatan hins vegar orðin mikil verslunargata og ég stóðst ekki mátið og kíkti í leiðinni inn í Old Navy og H&M, bara svona til að vindófsjoppa aðeins. Ég er ekki smá ánægð að það sé H&M svona nálægt mér hérna og er alveg staðráðin í því að fara þangað að kaupa föt þegar ég fæ launahækkun. En það er víst ekki fyrr en í júlí.
En núna er ég að fara að lesa vísindagrein um frumuhringinn. Júhú!
Ég tók mikilvægar ákvarðanir í gær og dagurinn var furðulegur. Get því miður ekki talað mikið um það núna, en það eru breytingar yfirvofandi.... Vonandi skýrist málið betur í dag.
Dagurinn í gær var ágætur, svona þegar ég var búin að jafna mig á því að vera vakin fyrir allar aldir. Ég vann eiginlega ekki neitt, ég var of þreytt til þess, mætti bara í fyrirlestur í ónæmisfræði og hékk í smástund á labbinu og fór svo heim. Lora kom til mín og við elduðum mat og svo fórum við upp til Josh og Melissu að horfa á West Wing.
Sumsagt, frekar furðulegur miðvikudagur sem endaði á hefðbundinn hátt...