Gvuð, ég var að fatta að ég hef ekki hugmynd um hver staðan í ensku deildinni er síðan Mörður fór. Kannski eins gott miðað við hvað hann Einar hefur að segja! Ég er vön að halda með Liverpool, af því að þegar þeir vinna, þá er Möddi minn glaður.
Ég endurtek það sem ég hef áður sagt hér á þessu bloggi:
Mér finnst íslensk stjórnvöld vera orðin að algerum álvershórum og umhverfishryðjuverkamönnum.
Mér finnst líka að Austfirðingar ættu að skammast sín. Nú bíða þau öll eftir að fara í sumarvinnuna sína á Kárahnjúkum. Bíða eftir því að skemma land það sem börn þeirra hefðu annars erft, fyrir skyndiágóða og skammsýni.
Mér finnst það svo sorglegt að Austfirðingar séu bara búnir að gefast upp og hafi látið stjórnvöld telja sér trú um það að þetta væri eina leiðin til þess að byggð og atvinnulíf héldist fyrir austan. Mér finnst svo sorglegt að Austfirðingar leyfi ráðamönnum þjóðarinnar að setja sig í sama flokk og fátæka hráefnisframleiðendur í Afríku, allt fyrir hagvöxt í nokkur ár, og einhver skítastörf í fabrikku sem spúir mengun yfir landið. Ég er líka að velta fyrir mér hvort að það eigi líka að lækka mengunarvarnarkröfur fyrir austan eins og gert var við álverið á Grundartanga. Á Grundartanga er enginn vothreinsibúnaður til þess að filtra út eitruðustu lofttegundirnar sem verða til við álframleiðslu. Hann þótti of dýr, og ef stjórnvöld hefðu farið fram á að hann yrði settur upp hefði Ísland ekki staðist samkeppnina við Afríku. Ætla Austfirðingar að bjóða börnum sínum upp á að anda að sér eitruðu lofti? Eða ætli þeir krefjist þess að hafa fullkomnar mengunarvarnir í álverinu?
Talandi um hreina orku sem fer í það að vinna álið hér á Íslandi. Það notað sem söluvara fyrir álverið hvað við séum að gera heiminum gott með því að vinna álið hér á landi með hreinu orkunni okkar sem ekki mengar neitt (já, óafturkræf náttúruspjöll teljast víst ekki með...). Ég efast hins vegar um að skipin sem sigla með báxítið hingað frá fjarlægum heimsálfum gangi fyrir vetni eða annarri umhverfisvænni orku?
Ég verð bara að segja það að mál eins og þessi fá mann til þess að hika þegar maður hugsar sig um hvort maður ætli nokkurn tíman að flytja aftur til Íslands. Ef að þenkjandi fólk hefur ekkert að segja á móti skammsýnum og gráðugum stjórnmála- og bissnissmönnum, er Ísland ekki land sem mig langar að búa í í framtíðinni.
Undanfarin fimm ár hafa stjórnmálamenn á Íslandi klifast á orðum eins og "hugvit" og "mannauður", en það er greinilega bara orðskrúð, því ekki sýna menn það í verkum að það sé eitthvað á bakvið orðræðurnar um íslenskt hugvit sem á að efla og auðga. Það er allt of erfitt. Gerum bara eins og við höfum alltaf gert og rústum landinu okkar. Svo að Austfirðingar geti farið að vinna í Álverinu sínu....
Það verður mjög, mjög, mjög langt þangað til að ég mun hafa geð í mér að fara austur á land.