Geisp, geisp, geisp. Ég var að skríða framúr eftir langan og góðan svefn. Það var svaka stuð í gærkvöldi, Hildur hélt upp á afmælið sitt og við fórum út að borða með henni á svaka góðan asískan stað niðri í bæ og svo út á djammið niðri í East Village. Brjálað tjútt í gangi. Ég spjallaði mikið við sænsku vini hennar sem vinna með henni og svo var náttúrulega íslenska gengið á staðnum.
Ég fór heim um þrjúleitið, en þá var East Village orðið að borg öskubílanna og fráteknu leigubílanna. Það var ausandi rigning og krapi út um allt og á öllum götuhornum stóð fólk að reyna að ná sér í bíl. Ég labbaði alla leið út á Third Avenue þangað til ég loksins náði bíl og var orðin hundblaut, því að auðvitað mundi ég ekki eftir því að taka með mér regnhlíf.
Það er enn ausandi rigning, svo að ég held að við Adelene förum ekki heldur í gönguferð í dag. En það er líka allt í lagi, því að heilsan er svona í slakari kantinum eftir djammið í gær...