Laugardagur, 22 febrúar, 2003
Rigningardagur

O, nú er ég vonsvikin. Við Adelene ætluðum að fara í gönguferð út á Palisades, en þá er bara svo svakaleg rigning og ekkert veður til göngu. Og það á að halda áfram að rigna.

Þetta er náttúrulega kjörið tækifæri til þess að taka til heima hjá sér og gera jóga og svona. Svo er afmæli hjá Hildi í kvöld. Stefnir í skemmtilegt djamm.

Ég er því bara heima í augnablikinu, að hafa til þvott og svona. Það er reyndar svaka kósí hjá mér. Róleg tónlist á fóninum og svona.

Posted by erna at 11:11 FH