Ég er búin að finna sjálfa mig aftur =) Eftir að ég byrjaði að hlaupa aftur er líf mitt búið að umpólast, mér líður svo mikið betur líkamlega og andlega. Eins gott að hætta aldrei aftur að hlaupa!
Ég var alger orkubolti á labbinu í dag, keyrði fullt af gelum og gerði tvær tilraunir... Frumurnar mínar eru í banastuði og allt á fullu trukki....
Ég byrjaði daginn á jóga og eftir vinnu fór ég á hlaupabrautina í gymminu og hljóp fimm K, var hægasti hlauparinn á brautinni í kvöld þó.. En þetta kemur allt saman. Svo dreif ég mig í Arts n' Crafts þar sem Adelene, Lora og Melissa nágranni voru að föndra.
Það eru komnir fjörutíu dagar síðan Mörður fór.. Ég trúi því eiginlega ekki, bara 164 eftir þangað til við hittumst aftur.