Mánudagur, 17 febrúar, 2003
The Blizzard of 2003

Já, þetta er búið að vera pínu steiktur dagur. Bylur und alles. Það voru mjög fáir á ferli í skólanum og klukkan ellefu var sent út ímeil um að engir tímar yrðu það sem eftir lifði dags. Það voru líka nokkrir labbfélagar sem komust ekki á svæðið. Svo bilaði hitakerfið í húsinu og við þurftum öll að vera í úlpum á labbfundinum.

Þegar ég var svo loksins búin að vinna og ætlaði að skella mér í gymmið var búið að loka, vegna veðurs. Ég varð því pínu svekkt og hélt heim á leið, en komst þá að því að allar gangstéttar voru ruddar og svaka gott hlaupafæri. Ég hugsaði með mér "Hef ég nokkurn tíman látið smá snjókomu stoppa mig í að taka smá hlaupasprett?" Og dreif mig bara út að hlaupa, vinkonum mínum til mikillar furðu. Það var frábært að hlaupa úti í fersku köldu loftinu og ég var í skýjunum eftirá.

Svo fór ég upp til Melissu, en Lora og vinkona hennar og Adelene og systir hennar komu líka og við horfðum á Joe Millionaire -auglýsingalausan, því að Melissa tók hann upp á TiVo. Og Melissa eldaði líka alveg frábæran pastarétt og við borðuðum og skvöldruðum alveg heilan helling. Oh.. frábær dagur. Ég elska snjó.. Ég saknaði Marðar samt svo í dag af því að ég vissi að hann hefði haft gaman af því að upplifa þetta með mér hér.

Posted by erna at 11:45 EH
Meiri fréttir úr snjónum í New York.

Ég veit ekki hvort ég á að þora að fara út. Fréttafólkið er farið að kalla þetta "The blizzard of 2003" og það var fréttamaður úti í Brooklyn sem fann sjóskafl sem var hálfs metra djúpur. Ég er ekki að djóka, maðurinn gekk um með tommustokk til þess að mæla dýpt skaflanna. Það skelfilegasta sem hann sagði samt var að það snjóaði "lárétt" og það var meira að segja skafrenningur. Oh, my, God.

Posted by erna at 10:42 FH
Meiri snjó, meiri snjó...

Tíhíhí! Ég var að fá ímeil frá Henry Pinkham, deildarstjóra Graduate School of Arts and Sciences Kólumbíu, nú rétt í þessu. Meilið var stutt or skorinort:

Classes are cancelled today, 2/17/03.

Ekki það að ég sé í neinum tímum eða neitt... Málið er hins vegar að veðurspáin rættist og það er allt á kafi í snjó. Þrjátíu sentrimetra snjór og borgin er lömuð. Ég verð eiginlega að segja að ég kvíði fyrir að hlusta á kvartið í sumum labbfélaganna í dag. En whattever...

Posted by erna at 10:06 FH
Snjókoma og skyr

Það er snjókoma úti. Ég verð nú að segja það að ég bjóst ekki alveg við svona miklum snjó hér í vetur. Umræðan á labbinu í dag snérist að miklu leyti um bylinn sem er yfirvofandi. Það á víst að snjóa 15 tommum af snjó í nótt, en snjókoman er þegar byrjuð. Ég var eina manneskjan sem var kát yfir því, það gerir hvort sem er aldrei aftaka veður hér, og þegar það snjóar er það alltaf frekar skemmtileg snjókoma. Ég renndi mér fótskriðu af labbinu, kom við hjá Loru til að hitta vinkonu hennar sem er í heimsókn hjá henni núna.

Annars sit ég bara hér við tölvuna og borða skyr. Skyrið hér í New York er súrara en skyr frá mjólkurbúi Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum. Fín tilbreyting frá væmna Dannon jógúrtinu sem er eins á litin og pastelmálning. Verst að það er bara hægt að fá hreint skyr hérna, ekkert skyr.is, hvað þá bláberjaskyr. En hreint skyr er betra en ekkert skyr, og alveg frábært fyrir línurnar!

Posted by erna at 12:10 FH