Fimmtudagur, 13 febrúar, 2003
Junkie

Jessöríbab, eftir fimm kílómetra hlaup, hring eftir hring eftir hring eftir hring í íþrótta"höllinni" hér í Kólumbíu, var eins og ég væri endurfædd. Mér leið eins og ég hefði verið með stáltein í gegnum mjaðmirnar síðan síðasta sumar og einhver hefði bara tekið sig til og fjarlægt hann sisvona! Oh.. ég vildi að ég hefði byrjað fyrr að hlaupa, það er svo svakalega gott. Jógað er fínt og allt það, sundið líka, svo langt sem það nær. Ég næ mikið betra hugleiðsluástandi og líkamanum líður mikið betur eftir hlaup en sund og jóga. Ekki það að sund og jóga virki ekki, hlaupin virka bara svo MIKIÐ betur. En ég held líka að þetta allt saman í bland virki langbest.

Mér líður hreinlega eins og ég sé endurfædd. Og að ekki sé minnst á að ég rotaðist um leið og ég fór í rúmið í gær og rumskaði ekki fyrr en klukkan hálfátta í morgun.
Já, þetta er endanleg sönnun þess að ég er adrenalínfíkill!

Posted by erna at 12:39 EH