Miðvikudagur, 12 febrúar, 2003
Bakteríudruslur

Vísindin eru ekki að ganga neitt allt of vel þessa dagana. Bölv og blót.

Í morgun þegar ég ætlaði loksins að fara að skoða frumurnar mínar og sjá niðurstöðu tilraunar sem ég hef beðið eftir í marga mánuði, þá tók ég eftir því að elsku RKO frumurnar mínar deildu diski með bakteríum. Urrr... blóðþrýstingurinn rauk upp úr öllu valdi þegar ég sá allar litlu pöddurnar þjótandi um í lausninni.

Í fjórða skiptið má ég því byrja upp á nýtt. Það sem af er febrúar hef ég ekki gert eina einustu tilraun. Ég hefði getað farið að gráta í morgun, en harkaði af mér.

Það góða við þessa aðstöðu mína er að ég hef nægan tíma til að stunda félagslífið í vikunni. Og núna er ég einmitt að fara út í gymm að hlaupa.

Ég er nefnilega búin að komast að nýjum sannleika. Maður á ekkert alltaf að vera að hlusta á líkamann og kvartið í honum, þá líður manni bara verr. Ef maður dissar þennan helvítis bakverk og fer bara út að hlaupa þá bara lagast allt! Ég vildi að ég hefði ekki hlustað á sjúkraþjálfann minn og bara haldið áfram að hlaupa í sumar, það hefði sparað mér þjáningarnar! Maður verður bara aumingi á því að láta alltaf eftir ef maður finnur til. Stundum verður maður bara að harka af sér!

Posted by erna at 04:11 EH