Var að koma úr afmælinu hjá Loru. Svaka fínt, Adelene eldaði geðveikan kjúklingarétt og gerði ostaköku. Ég fékk að hjálpa til við matseldina og ristaði hnetur og saxaði allt dótið sem fór í réttinn.
Lora kom heim um áttaleitið og við horfðum á American Idol ásamt öllu genginu og svo komum við henni á óvart með kökunni.
Annars er það markverðasta við daginn í dag að ég fór í jógatíma í morgun og það var ekkert smávegis fínt.
Kennarinn spurði straks hvort að það væru einhverjir í hópnum sem ættu við meiðsl að stríða og þegar ég sagði henni frá bakveseninu á mér (hún vildi sko vita nákvæmlega hvað var að) þá var hún alveg "Oh, you are at just the right place, in my experience Iyengar yoga has helped a lot with that kind of injury..." Og svo var hún ýkt mikið að hjálpa mér með stöðurnar og svona, þannig að ég kom út alveg teinrétt í baki og er búið að líða svo vel síðan.