Sunnudagur, 9 febrúar, 2003
All that jazz

Ég gleymdi alveg að minnast á það að ég fór í bíó í vikunni með Loru og Melissu nágranna. Við skelltum okkur á Chicago. Vá, myndin er ekkert smá góð. Ég skemmti mér konunglega og fannst Rene Zellweger fara alveg gersamlega á kostum.

Ég sit nú hérna við skrifborðið mitt og les vísindagreinar. Það er nú bara þónokkuð gaman pæla í þessu öllu saman, hvernig prótínið mitt virkar og svona, en ekki skemmir það fyrir að ég er að hlusta á sándtrakkið úr Chicago í leiðinni. All that jazz....

Posted by erna at 01:40 EH