Laugardagur, 8 febrúar, 2003
Gallabuxur, mexíkanskur, partý og erfiður laugardagur

Úff.... heilsan er ekki alveg í besta lagi í dag...
Lora dobblaði mig niður í bæ í gær og við keyptum okkur nýjar gallabuxur og boli, það var ekkert smá fínt, enda ekki vanþörf á á þessum bæ. Ég keypti mér líka nýja strigaskó til þess að nota í vinnunni, því að þeir gömlu voru orðnir gatslitnir og lúnir.

Eftir verslunarleiðangurinn hittum við Melissu nágranna og Melissu á labbinu mínu, Adelene og Emily á mexíkönskum veitingastað. Nammi, namm, staðurinn heitir Mama Mexico og framreiðir alveg hreint frábæran mat. Ég fékk mér karfa fajita, namm.

Síðan héldum við heim til mín til þess að reyna að ganga aðeins á áfengisbirgðirnar sem ég á eftir afmæli okkar Adelene. Það gekk nú bara alveg ágætlega, Adelene blandaði alveg hreint frábæra kokkteila handa okkur og við sátum og spjölluðum langt fram á nótt. Algert "girlie-talk" í gangi, við vorum þvílíkt flissandi og á endanum sagði einhver: "Oh, my god! We are just talking about all the stuff THEY think we always talk about all the time!" THEY á hér við karlmenn =) En það var líka alveg satt. Ég skemmti mér ekkert smá vel, og það var sko ekki vanþörf á eftir taugastrekking undanfarinna daga og vikna.

Lora sat svo hér með mér, eftir að hinar stelpurnar fóru, og við spjölluðum alveg fram undir morgun, og hún gisti meira að segja hjá mér. Mér fannst það ekkert smá fínt, því að mér finnst stundum pínu erfitt að vera alein heima.

Nú er hinsvegar hausverkur dauðans við völd og fyrir framan mig á skrifborðinu liggur bunki af vísindagreinum sem ég er að fara að lesa. Ég held að þessi dagur verði í boði íbúprófen og félaga.

Posted by erna at 02:37 EH