Fimmtudagur, 6 febrúar, 2003
Andleysi

Já, það hefur orðið bloggfall mikið hér undanfarna daga. Sennilega hið mesta síðan bloggskrif þessi hófust fyrir réttum fimmtán mánuðum! Ástæðan er einföld, ég er heltekin algeru andleysi.

Lífið lúsast bara áfram, vinna, éta, sofa. Stresskast yfir qualifier prófum, sem ég veit að eru ekki það mikið mál. Kannski aðallega stresskast yfir eigin leti að vera ekki byrjuð að lesa fyrir prófið. Annað stresskast yfir því að ég veit ekki um hvað ég á að skrifa qualifier prófið mitt af því að ég veit ekkert hvert verkefnið mitt stefnir eða hvort það sé verkefni yfirleitt.

Djísöss. Ég vildi að það væri kominn ágúst og ég gæti farið í sumarfrí.

Posted by erna at 12:27 FH