Laugardagur, 1 febrúar, 2003
Enn af þvottakorti.

Ekki þvoði ég nú þvottakortið eins og hann Unnar var að hafa áhyggjur af. Ég fann kortið sko í morgun. Ég var búin að hafa fyrir því að hringja í húsvörðinn og komast að því hvar ég gæti fengið nýtt kort. Fór á staðinn, en þá var kortasjálfsalinn mjög gáfulega staðsettur inni í læstum stigagangi... Reddaði því nú samt, keypti nýtt kort, sem kostaði fjóra dollara, og bætti þvottapeningum á það. Svo fór ég heim og hrúgaði öllum þvottinum mínum í óhreinatauspokann og fór og skipti um föt og fór í ljótu fötin sem ég fer bara í þegar ég er að þvo og það er ekki neitt til hreint.. Og viti menn, gamla kortið var í vasanum á ljótu buxunum...

Posted by erna at 08:27 EH