Fimmtudagur, 30 janúar, 2003
Alltaf í ræktinni?

Jæja, nú þarf ég að fara að venda kvæði mínu í kross og gera eitthvað í mínum málum. Ég er nefnilega farin að fá spurningar um útganginn á mér eins og: "Did you just work out", "Are you going to the gym?" og fleira í þessum dúr. Málið er nefnilega að ég er búin að vera í joggingbuxum í vinnunni alla vikuna, og í gær fór ég í transtex, útilegupeysunni minni í stíl við flísbuxurnar mínar.

Nú kunnið þið að velta fyrir ykkur af hverju ég sé svona sportleg til fara þessa dagana. Ástæðan er einföld. Ég er búin að týna þvottakortinu okkar og ég veit ekki hvar ég fæ nýtt kort. Ég hefði svosem getað verið búin að redda því fyrir löngu, en sólarhringurinn hefur snúið frekar öfugt hjá mér undan farið, þannig að hef alltaf verið að koma heim löngu eftir að þvottahúsinu lokar.

Þetta er svona snjallkort sem maður millifærir peninga á í tæki niður í þvottahúsi og svo notar maður kortið til að borga fyrir hverja vél. Sniðugt kerfi. -Þangað til maður týnir blessuðu kortinu.

Posted by erna at 11:50 EH