Þriðjudagur, 28 janúar, 2003
Psycho killer

Bílskúrsband fraternity gauranna í kjallaranum hjá mér er búið að læra nýtt lag. Nú spila þeir Psycho killer á fullu, aftur og aftur og aftur og aftur...

Annars er ég á leiðinni í Arts n' Crafts, en ætla að borða rísottóð sem mallar á pönnunni áður. Í kvöld verður horft á annað raunveruleikasjó og haldið áfram að drekka afganginn af bjórnum úr partýinu okkar Adelene. Svo ætla ég að leggja lokahönd á pródjekt sem ég er búin að vera (of-) lengi að föndra við í klúbbnum. Júhú, það verður gaman að sjá útkomuna.

Ég fór líka út í bætiefnabúð áðan og keypti mér garðabrúðuduft. Það á víst að vera svo svakalega gott að taka það við svefnleysi. Heitir valeran upp á útlensku. Hef aldrei prófað það sjálf, en ráðlagði mörgum að forskrift Shape að prófa og virkaði víst vel. Ég vona að ég vakni aftur á morgun!

Posted by erna at 08:39 EH
Bandarísk lágmenning

Kíkti til Loru eftir vinnu, eða réttara sagt Lora kom við á labbinu um áttaleytið og við ákváðum að fara heim til hennar að fá okkur í svanginn og horfa á Jóa milljónamæring og þá lágkúru sem í þeim þætti birtist. Heheheh... ég er sko algerlega sokkin í bandaríska lágmenningu, farin að horfa á raunveruleikasjónvarp og kjamsa á Chicken McNuggets á meðan... En við skræktum lítið yfir sjónvarpinu þó. Æji, þetta var ekkert smá fínt, við líka tölum alltaf svo mikið að við getum ekki stoppað. Lora er búin að lofa mér að fara með mig heim til sín næsta sumar til þess að ég fái að sjá eldflugur (öh... fireflies... hvað sem þær nú heita á ísglensgu). Oh.. ég hlakka svo til.

Núna er ég komin aftur í kotið og ætla að skríða í rúmið... geisp.

Posted by erna at 12:11 FH