Fimmtudagur, 23 janúar, 2003
Mygl

Vakningarþjónusta dagsins var í boði Verizon. Ég vakti langt fram á nótt að lesa bókina Flateyjargáta, fannst hún nefnilega nokkuð spennó. Vel skrifuð að minnsta kosti. Svo hringdi síminn klukkan hálfefllefu og vakti mig.

Það var gaur frá símafyrirtækinu Verizon að bjóða mér einhvern díl. "I'm not interested in your offer sir"... hann lét sér ekki segjast og ég endurtók það sem ég sagði. Urrr.... Ég sagði honum að hann væri dónalegur og skellti á hann. Ég þoli ekki telemarketing, en í þetta skipti má segja að hann hafi komið að góðum notum, því ég hefði eflaust annars sofið framyfir hádegi. Og nú er ég myglaðri en nokkurn tímann. Kannski Rodney geti eitthvað hjálpað mér með það. Best að drífa sig í sjóvarpsjóga!

Posted by erna at 10:46 FH