Miðvikudagur, 22 janúar, 2003
Nístingskuldi

Ég er búin að vera að kvarta smá yfir kulda í færslum undanfarinna daga. En nú bara má ég til og skrifa hér færslu sem snýst einungis um kvart yfir kulda. Það er átta stiga frost úti. Og það er ekkert svona venjulegt átta stiga frost eins og maður á að venjast frá Íslandi, heldur er svo mikill loftraki hér að frostið bítur fastar en maður á að venjast.

Og til þess að bæta gráu ofaná svart hafa ofnarnir í íbúðinni hjá mér ekki undan að kynda upp. Í augnablikinu er ég ekki alveg jafnánægð og áður með það hvað það er hátt til lofts hér. Það er brjálað flott, en bara ekkert svakalega praktískt í kulda!

Þannig að núna ætla ég að klæða mig í öll náttföt sem ég finn í skúffum mínum og skríða upp í rúm og halda áfram með Flateyjargátu.

Posted by erna at 09:37 EH
Náttúruöflin eru búin að taka mig í sátt

Mikið betri dagur í dag! Náttúruöflin eru aftur komin í mitt lið, þar sem ég sökk ekki bara til botns þegar ég fór í sund áðan. Hafði alla laugina fyrir mig. Veeiii...

Mætti í fyrsta TA tímann í ónæmisfræði. Boring as hell verð ég að segja, en wottever, ég þarf bara að klára þetta af.

Núna er komið að djúsí parti dagsins. Áframhaldandi tilraunir. Jeijjjjjjjj..

En mikið andsk... er kalt úti!

Posted by erna at 02:52 EH
Vakningarþjónusta hundraðogþrettándastrætis

Ég þurfti sko enga vekjaraklukku núna áðan, húsvörðurinn minn sá til þess. Hann bankaði frekjulega upp á hjá mér, aftur og aftur á meðan ég var að klæða mig í sloppinn. Hann tilkynnti mér svo að hann ætlaði að gefa mér klukkutíma til þess að koma mér á fætur, svo þyrfti hann að koma til þess að athuga hvort baðkarið mitt læki. Þetta var svo sem í lagi, því ég þurfti jú að vakna, en nú er liðinn einn og hálfur tími og hann hefur ekki látið sjá sig. Og ég veit ekki hvort ég þarf að vera hér þegar hann kemur. Ég sem flýtti mér svo að ég sleppti síðustu jógapósunum. Rodney verður örugglega fúll yfir því þegar ég kveiki á honum á morgun!

En honum er nær, hann getur bara verið stundvís, hann fær bara að laga þennan leka síðar, því ég þarf að mæta á labbið og svo á fyrirlestur í ónæmisfræði, kúrsinn sem ég er að tíeija.

Posted by erna at 09:57 FH