Ahhh... Góður endir á annars frekar pirrandi degi. Nenni eiginlega varla að segja frá því.. bara svona handauppásnúningar í gangi í deildinni okkar vegna skipulagsleysis og svo ekki neitt allt of góðar fréttir varðandi verkefnið mitt. Ég var beisiklí að lesa grein sem dregur virkni aðferðarinnar sem ég er að prófa í efa...
Úff, enda hringdi ég skælandi í Mörð seinnipartinn, en það var SVOOOOO gott að tala við hann og mér leið mikið betur á eftir. Fór í sund og synti í tíu mínútur, en mér fannst það einhvern veginn vera toppurinn á leiðinlegum degi að ég flaut varla í lauginni... Talandi um að náttúruöflin séu hreinlega á móti manni!!!!
En, svo varð allt mikið betra, ég dró Melissu, nágranna með mér í Arts n' Crafts, en þar var lítið um föndur og mest bara kjaftað og horft á American Idol, fyrsta þáttinn í seríu tvö. Líffræðivinir mínir eru að fíla Melissu í klessu, þannig að hún er eiginlega bara komin í hópinn. Hún hristi samt hausinn þegar við stóðum öll upp klukkan hálfellefu og ákváðum að drífa okkur á labbið til að klára það sem við vorum að gera...
Ég fékk afmælisgjöfina mína frá Loru og Adelene í kvöld. Þær höfðu gert handa mér svona "snowglobe" (æji svona kúlu með dóti inn í og svo hristir maður og þá kemur snjór). Inn í hana höfðu þær föndrað tvo lunda sitjandi á matardisk ásamt grænum baunum, hnífapör við hliðina og fyrir aftan var hrúga af lundagoggum og lundafótum.. svona eins og afgangurinn af þeim sem þegar er búið að éta. Ekkert smá krúttlegt. En þessi snjókúla er ástæðan fyrir því að ég er enn á labbinu, ég var að fylla hana upp af vatni og setja smá Tween út í til að koma í veg fyrir að snjókornin klessist saman. (Tween er svona "non-ionic detergent" sem við notum í líffræðirannsóknunum......
Sumsagt, fúll dagur, frábært kvöld... ó, og skítakuldi úti.....
Orð dagsins í dag er potocytosis:
Active-receptor coupled uptake
Ég er greinilega vitlausari en ég hélt, því að ég hef aldrei séð þetta orð áður.
Kosturinn við að vera nemi er ótvírætt sá að maður hefur meira frelsi með sinn vinnutíma en ef maður væri að vinna í svona "alvöru" vinnu. Í dag er til dæmis lítið að gera hjá mér á labbinu af því að frumurnar mínar vaxa hægar en þær eru vanar þessa dagana. Þess vegna þarf ég að bíða þangað til á morgun með að byrja á næstu tilraun. Það vill líka svo skemmtilega til að hreinlega öll fötin mín eru óhrein, þannig að ég ákvað að mæta ekkert fyrr en á hádegi, og þvo frekar þvott og lesa vísindagreinar. Aðalástæðan fyrir því að ég get leyft mér munað sem þennan er sú að það eru allir með sitt eigið verkefni í gangi á svona rannsóknarstofu og finna því lítið fyrir því þó að aðrir mæti seint.
Þetta er því kósí morgun hérna hjá mér, vísindagrein og kaffibolli og lítill konfektmoli. Það gæti bara ekki verið betra!