Mánudagur, 20 janúar, 2003
Veeenjulegur dagur

Ohhh... ég hef ekkert að blogga um, því að dagurinn í dag var svona bara alveg dææææmigerður dagur. Stórfínn samt, ég er eitthvað svo endurnærð eftir helgina, farin að rétta úr mér eftir stress undanfarinna vikna. Bakið á mér meira að segja með besta móti..... (hemm.. nú fannst mér næstumþví viðeigandi að bæta inn lýsingu á hægðunum, mér finnst ég alltaf hljóma eins og gömul kerling þegar ég tala um bakið á mér).

Annars get ég ekki skrifað meira án þess að koma með tæknilegar lýsingar á því sem ég gerði í vinnunni í dag: 2 Western, 2 tilraunir með frumur og mótefnalitnun á báðum og tvær transformasjónir á bakteríum fyrir prótíntjáningu. Það virðist því vera að tveir sé tala dagsins í dag.

Posted by erna at 10:11 EH
Fráááábær helgi

Þessi helgi var alveg stórfín. Afmælið mitt lukkaðist ekkert smá vel. Ég var heima með Loru frá því um sexleytið að undirbúa, sjæna pleisið og svona. Lora þurfti svo aðeins að skreppa heim til sín og ég fór í sturtu á meðan. Svo þegar ég stóð á nærfötunum einum saman að klæða mig í sokkabuxur hringdi bjallan, og ég ýtti bara á takkan, vitandi að þetta væri Lora. Stuttu seinna var dyrabjöllunni við dyrnar hér uppi hringt og þar sem ég var enn að koma mér í nælonið, hrópaði ég bara kom inn... Dyrnar opnuðust varlega og inn gægðist asískur gaur í svartri North Face dúnúlpu, og hrökklaðist svo í burtu við að sjá mig standandi í miðri íbúðinni á nærfötunum einum saman. Ég hljóp inn í svefnherbergi og fann sloppinn minn og fór til dyra, og haldið þið ekki bara að þetta hafi verið blómaafhendingagaur! Hann stóð þarna á tröppunum með tólf rauðar rósir handa mér, auðvitað frá honum Merði =) Juuuu.. honum tókst þokkalega að koma mér á óvart þar. En ótrúlega rómó.

Um níuleytið tóku gestirnir að streyma inn. Það var eiginlega pínu fyndið að allir karlmennirnir sem ég bauð voru út úr bænum um helgina, þannig að þetta varð alveg hreint svakalegt stelpupartí. Það mættu miklu fleiri en ég bjóst við, því mjög margar stelpnanna voru rétt nýkomnar til borgarinnar eftir jólafrí og við vorum því tuttugu kvensur samankomnar í teitinu! Þetta var líka nokkuð fjölþjóðlegt, með fulltúum landa eins og Spánar, Argentínu, Kanada, Íslands og svo náttúrulega Bandaríkjanna.

Adelene blandaði drykki handa okkur alla nóttina af mikilli snilld, með nýja kokteilhristaranum sínum, gerði nokkra mojitos að minni beiðni, en kosmóarnir fengu smá pásu. Svo voru þvílíkar trakteringar, stelpurnar gerðu sitt lítið af hverju, guacamole og epplastrudel, en upp úr stóð nú samt skúffuakan hennar Loru, en hún teinaði með kremi á hana Kanadíska og íslenska fánann á sitt hvorn helminginn og svo sungu stelpurnar afmælissönginn fyrir okkur.

Partýið stóð langt fram á nótt. Upp úr klukkan fjögur var Josh að koma af djamminu og bankaði uppá til þess að vitja Melissu og fékk sér sæti og ræddi við okkur um óperur og við hlustuðum náttúrulega á La Bohéme Baz Luhrmanns undir. Það var ekki fyrr en klukkan að verða fimm að síðustu gestirnir fóru. Ég gat ekki alveg hugsað mér að fara þá strax að sofa, vildi treina galdra dagsins aðeins og hringdi því í Mörð, sem var svo sætur að nenna alveg að tala við mig og þóttist hafa verið vakandi klukkan tíu á laugardagsmorgni. Ég bara varð að þakka honum fyrir rósirnar.

Gvuð hvað ég var svo þunn þegar ég vaknaði klukkan tíu. Ég fór því bara og fékk mér vatn og verkjalyf og svaf til hádegis. Deginum varði ég svo við mjög viðeigandi iðju. Ég las spennusöguna Röddina eftir Arnald Indiriðason, en við fengum hana í jólagjöf. Ég las bókina og svaf til skiptis til klukkan sex, en þá fór ég á fætur, fékk mér skúffuköku og ís í morgunmat og tók til. Það var reyndar ekkert að taka til, ég þurfti bara að vaska smá upp, lofta út, moppa gólfið og þurrka af borðunum. Akkúrat þegar ég var að fara í sturtu bönkuðu Josh og vinur hans Jeff uppá hjá mér og buðu mér að koma upp í teikát og vídejó, þannig að ég skellti mér í sturtu og dreif mig upp.

Í dag byrjaði ég svo á annari bók, Flateyjargátu, eftir Viktor Arnar Ingólfsson, en gat ekki alveg leyft mér þann munað að liggja í rúminu og lesa allan daginn, því að matur var orðinn af skornum skammti í kotinu. Það var eiginlega ekkert til nema áfengi hér í morgun. Í ísskápnum urðu eftir hvorki meira né minna en sex bjórkippur eftir partýið og af sterku víni urðu eftir nær heil tekíla, tvær nær fullar rommflöskur og hálf ginflaska. Samt henti ég sjö ruslapokum, fullum af bjór og vínflöskum.

Ég dreif mig því í Fairway og keypti í matinn og svo á labbið. Vanesa "vinkona" mín var mætt á svæðið, og eitthvað mikið hefur breyst, því að hún er þvílíkt að sleikja mig upp þessa dagana, skoða gögnin mín og gefa mér góð ráð. Úff, hún hefur aldeilis mýkst upp. En alla vegana, þá er það ekkert smá gott, því að hún verður hér sennilega í mánuð að gera tilraunir, og mér þætti ekkert verra ef ég gæti spurt hana ráða.

Svo eftir smá labbvinnu komu Lora og Adelene í heimsókn til mín og við elduðum chilli saman og Adelene gerði eplagraut með ís í eftirmat og við sátum bara og kjöftuðum í allt kvöld.
Framundan er hins vegar löng og skemmtileg vinnuvika, þannig að ég held að ég drífi mig bara í rúmið.

Posted by erna at 12:22 FH