Fimmtudagur, 16 janúar, 2003
Fúll dagur með góðum endi...

Oh.. það gekk einhvern veginn allt á afturfótunum hjá mér í dag. Ég var mætt mjög snemma á labbið, en var svo lengi að gera allt. Svo loksins seinni partinn, þegar ég var að fara að hlaða gelið mitt kom Ron Prywes inn og sagði að ég ætti að vera TA (teacher assistant) fyrir kúrsinn hans á vormisserinu. Sem ég er frekar fúl yfir, því að ég ætlaði að taka kúrs sem á eftir að vera mjög gagnlegur og er aðeins í boði annað hvert ár.

Reyndar er hluti af þessu kennsludæmi jákvæður, því ástæðan fyrir því að það er verið að pína okkur til að kenna strax er að það var verið að minnka kennsluskylduna hjá okkur, þannig að núna þarf ég bara að vera TA fyrir einn kúrs og fara yfir próf í einum. Ég er því hálfnuð með kennsluskylduna nú þegar, án þess að hafa haft nokkurn skapaðan hlut fyrir því. Það sem pirrar mig hins vegar er þetta skipulagsleysi í deildinni, þar sem þetta var ákveðið í fyrradag og nú er verið að pína okkur öll til þess að kenna strax. Urr... og ég sem var búin að segja nei við Amer Beg um að vera TA fyrir hann, því að ég ætlaði að taka kúrsinn hennar Lili Yamasaki.

Hins vegar get ég notað kennsluna á þessu misseri sem afsökun fyrir því að taka ekki qualifying prófið mitt fyrr en seint í vor, en mig veitir ekki af þeim fresti, ekki af því að ég þurfi beint allan þennan tíma til að skrifa, heldur veit ég ekki alveg hvort að ég eigi eftir að hliðra aðeins til með verkefni á næstu tveimur mánuðum, þannig að ég ætla að slá prófinu aðeins á frest þangað til ég veit hvaða verkefni mig langar til að gera.

Æji, en á morgun verður vonandi betri dagur... og þessi endaði nú ekki svo illa, því að ég fór heim til Adelene og við elduðum frábæran kvöldmat og gerðum ídýfu og eplaböku fyrir partýið á morgun. Það verður áreiðanlega stuð, þrátt fyrir að flestir Íslendinganna sem ég bauð virðast enn vera á Íslandi. Það verður bara fámennt en góðmennt!

Posted by erna at 10:43 EH
Nágranni minn er greinilega svefnpurrka

Ohh.. nú er ég að missa vitið. Nágranni minn er búinn að láta vekjaraklukkuna sína hringja í meira en klukkutíma. Oh.. þetta er svona pípklukka, ég þoli ekki þetta hljóð.

En það góða var kannski að ég vaknaði við klukkuna hans þannig að ég er klædd og komin á ról og tilbúin í slaginn klukkan bara níu! Ég var hrædd um að ég myndi sofa of lengi þegar ég hefði engan kött til þess að vekja mig. Vekjaraklukkan mín virkar ekki á mig.. enda er hún bara með útvarpi, engin hringing. Það er ekkert mál að sofa í gegnum svosem eins og einn útvarpsþátt.

Það er ótrúlega kalt hérna þessa dagana. Það er reyndar bara þriggja stiga frost, en svaka vindur og það er svo rakt hérna að þessi kuldi jafnast á við kælinguna í 7-10 gráðum heima á Íslandi. Brrr. Fólki finnst eitthvað skrýtið að mér sé kalt. Eins og mér eigi ekki að verða kalt fyrr en í þrjátíu stiga frosti. Og ég er alltaf að útskýra hversu mikið rangnefni Ísland í raun er og náttúrulega að útskýra að ég sé ekkert ofurmenni. Jæja, best að dýfa sér út í kuldann.

Posted by erna at 09:04 FH