Jæja, nú er ég fyrst orðin alein heima. Josh og Melissa voru að koma heim frá Ástralíu eftir þrjátíu og fimm klukkutíma ferðalag, en það fyndna var að þetta ferðalag þeirra átti sér stað allan tímann þann 15. janúar. Þau fóru nefnilega yfir dagalínuna á leiðinni, kúl.
En sumsagt, þau tóku Miss Maddie frá mér. Nú er ósköp tómlegt hér í kotinu hjá mér, ekkert mjálm og engin læti. Það verður enginn til að hlýja mér uppi í rúmi í kvöld. En þau gáfu okkur Merði ástralska sauðagæru, sem er ótrúlega mjúk, ég get kannski bara sofnað á henni í staðinn!
Ég benti þeim hjónaleysunum á klóar og táfjöldann á frökeninni og þau sögðu að þau vissu af þessu og að hún hefði meira að segja verið með tvær klær í viðbót, en þau létu fjarlægja þær. Maddie virtist ánægð að koma heim, en þau bjuggust ekki við því að það myndi vara lengi, því venjulega hefnir hún sín á þeim með ælum um alla íbúð þegar þau hafa verið í burtu. Ég bara spyr, er svona hræðilegt að vera í heimsókn hjá okkur Merði að það valdi bara uppsölum í langan tíma eftir á?
Ég verð að biðja hann Binna afsökunar, ég hafði ekki hugmynd um að hann væri farinn að blogga og þar af leiðandi linkaði ég ekki á hann.
En til að bæta fyrir það þá er hér linkur á Binna í Bristol.
Ég verð nú að segja að regluritarar LÍN eru ansi útsmognir. Til dæmis í ár, þá lækkaði frítekjumark þeirra sem eru að koma úr námshléi um helming. Aftast í úthlutunarreglunum eru svo svona útreikningsdæmi um dæmigerða einstaklinga og hvað þeir fá mikið í lán. Nú vill svo til að einstaklingur sem er að koma úr námshléi fær sömu upphæð í lán í ár í þessum dæmum og í reglubókinni fyrir síðasta vetur. Hvers vegna? Jú, regluhöfundar sáu hvað þetta leit rosalega illa út og lækkuðu hinar dæmigerðu tekjur þess sem kemur úr námshléi um mörg hundruð þúsund krónur. Þannig að allt líti nú örugglega vel á pappírunum.
Annað sem pirrar mig líka er að ég fæ útborguð námslán miðað við gengi krónunnar gegn dollar þann dag sem ég fæ lánið útborgað. Hins vegar pössuðu regluhöfundar sig á því að festa gengið sem þeir nota til þess að reikna tekjurnar mínar yfir í krónur, en þeir miða við gengið einhvern dag í apríl, en þá var gengi krónunnar á árinu hve slakast, 96 krónur fyrir dollarinn! Mér finnst þetta svo útsmogið. Af hverju er ekki bara líka hægt að hafa tekjugengið á gegni útborgunardags. Eða, af hverju má það ekki bara vera meðalgengi krónunnar á síðustu önn? Þetta slyppi fyrir horn ef námslán væru ekki alltaf greidd út eftirá og maður þyfrti ekki að taka yfirdrátt þangað til.
Með þessari tilhögun kemst LÍN upp með að lána mér 30 þúsund kalli minna en ella. Hvað ætli stofnunin sé að spara mikið með því að fara svona á bakvið okkur aumingjana sem þurfum að vera að betla fé frá opinberum stofnunum?