Þriðjudagur, 14 janúar, 2003
Próf!

Mér finnst nú venjulega ekkert gaman af þessum netprófum, og svo er ég svo pjöttuð, að ég vil ekki subba út fínu síðuna mína með einhverjum leim og ljótum myndum :Þ
Hins vegar hafði ég mjög gaman af þessu prófi.

Posted by erna at 11:12 EH
Nýjar krækjur

Ég bætti við nokkrum linkum hér til hliðar það voru nokkrir vinir og kunningjar sem voru ekki alveg að fá tilskilda athygli.

Nýju linkarnir eru;
Ella Maja
Geimveira
Lady Marý
Þessi fær nú bara að fljóta með aftur af því að hún Sólveig Marý er svo sæt:
Sólveig Marý

Þegar ég nenni ætla ég svo líka að linka á þá sem ég þekki úr Hvarfi, en það er fullt af skemmtilegu fólki þar að blogga. Mér finnst nú eiginlega að Hvarf ætti að linka á fyrrverandi og núverandi meðlimi sem blogga!

Posted by erna at 10:54 EH
Miss Maddie óþekkastelpa

Hún Miss Maddie veit sko alveg hvernig hún á að fá mann fram úr rúminu. Hún beitti því snilldarlega bragði í morgun að æla við rúmstokkinn hjá mér og hlaupa svo fram í stofu og æla þar. Hún kann sko að þeyta manni í kringum sig. Ég refsaði henni með því að gefa henni ekki morgunkorn fyrr en eftir að ég var búin að gera jóga, en leið illa yfir því allan tímann. Mér fannst ég svo vond við kisu. Hún er greinilega komin með algert tangarhald á mér.

Hún er svo mikið krútt. Hún sofnaði á maganum á mér í gær þegar ég var að lesa upp í rúmi, og ég kunni ekki við að ýta henni í burtu þegar ég fór að sofa, þannig að ég sofnaði bara líka með hana á maganum. Æji, það var eitthvað svo gott að finna hlýjuna frá henni, og það er ekki eins og það sé offramboð á hlýju í rúminu eftir að Mörður fór.

Posted by erna at 10:21 FH
Joe millionaire

Geisp... ég var að koma frá Loru, en við vorum að horfa á það nýjasta í raunveruleikasjónvarpinu, hann Joe Millionaire. Þættirnir ganga út á það að það er gaur sem vinnur á gröfu og er nú bara alveg þokkalega myndarlegur, er fenginn til þess að þykjast vera milljónamæringur. Sjónvarpsstöðin æfði hann í mannasiðum og svona, þannig að hann væri aðeins trúverðugri og kenndi honum að dansa og sitja hest. Síðan voru fullt af heimskum konum fengnar til þess að taka þátt í svona keppni um hver verður konan hans. Þær eru nú allar frekar heimskar greyin, og það var frekar fyndið að horfa á þær vælandi þegar hann sendi þær út að vinna í rigningu og að moka kol og svona. Og Jói litli segist vera að finna út hver þeirra er mesti karakterinn, og hver þeirra sé ekki að þessu fyrir peningana heldur ástina. Sem er nú mesti þvættingurinn og heimskan af þessu öllu. En ef heimskir amerískir áhorfendur vilja trúa því að hann sé að gera þetta fyrir ástina, þá er það víst í góðu lagi.

Mér finnst þetta frekar fyndið, en á sama tíma líður mér frekar illa, því að samviska mín segir mér að það sé ekki fallegt að horfa á niðurlægingu annarra, því að dömurnar halda jú að hann sé milli. En svona eru fjölmiðlarnir í Ameríku, það gengur allt út á að vera fyndinn og klár á kostnað annarra.

En ég er farin í rúmið, og það verður einhver annar en Jói milljónamæringur í mínum draumum í nótt.

Posted by erna at 12:04 FH