Mánudagur, 13 janúar, 2003
Bara venjulegur mánudagur

Jæja, þá er ég komin heim snemma eina ferðina enn. Ósköp rólegur dagur, Adelene kom aftur í dag eftir Asíudvöl. Hún á afmæli á morgun, þannig að við vorum að plana partýið sem verður hjá mér á föstudaginn, sem er jú afmælisdagurinn minn! Þetta verður jafnframt minn síðasti afmælisdagur, því ég ætla að gera eins og mamma og vera bara tuttugu og níu það sem eftir er.

Miss Maddie er að ganga af göflunum, hún er ekki vön því að vera ein heima allan daginn. Hún er ekkert smá pirruð yfir því að ég sé að borða en ekki leika við hana. Hún verður fegin þegar Josh og Melissa koma aftur frá Ástralíu, ég er nefnilega ekki næstumþví nógu dugleg að leika við hana.,

Posted by erna at 06:21 EH