Sunnudagur, 12 janúar, 2003
Bleh......

Ohhh.. letin í mér. Ég bara hangsa hérna og geri ekki neitt nema bora í nefið og prumpa og klappa kettinum, en ég ætlaði að vera svo dugleg að læra..

En ég er búin að senda nokkur ímeil og fá nokkur ímeil, þannig að þetta hefur nú ekki verið til einskis, það er alltaf svo gaman að fá meil frá vinum og vandamönnum. Möddi hringdi líka, það var gaman =) Hann er að fara að leita sér að vinnu. Vantar einhvern lesenda bloggsins bókara í vinnu í svo sem eins og sex mánuði?

Posted by erna at 04:42 EH
MWO, flexhose og fleira

Það verður ekki sagt annað en að þrátt að ég sakni eiginmannsins var dagurinn í dag alveg hreint stórgóður. Lora sá sko fyrir því.

Hún byrjaði á því að draga mig á Burger King, en þangað hef ég ekki komið síðan ég flutti hingað. Þar kynnti hún mig fyrir svokölluðum "slurpies", svona krapa með ávaxtabragði. Síðan fórum við niður í bæ að kaupa hluti til heimilisins og ég fjárfesti loksins í örbylgjuofni fyrir afmælispeningana sem ég fékk. Það er nefnilega orðið alveg bráðnauðsynlegt fyrir mig að eiga örbylgjuofn vegna þess að það verða svo miklir afgangar þegar ég elda fyrir mig eina ;) Að ég tali nú ekki um hvað það verður þægilegt að gera hafragrautin í örraranum á morgnana. Aldrei aftur uppvask á hafragrautspotti, júhú.

Síðan fórum við heim með örbylguofninn. Þar beið Miss Maddie eftir okkur, en hún og Lora eru orðnar ansi góðar vinkonur. Lora tilkynnti mér svo að Miss Maddie væri með stökkbreytingu í "hedgehog" efnaferlinu. Hún er nefnilega með allt of margar tær og klær á hverjum fæti, en hedgehog stökkbreyting veldur því að lífverur fá auka útlimi, klær, fingur og svoleiðis. Og já, við erum nördar og erum stoltar af því.

Eftir að við settum upp örbylgjuofninn fengum við okkur auðvitað örbylgjupopp og ég gerði brauð í brauðvélinni. Síðan ákvað ég að hringja í Con Edison, gasfyrirtækið, vegna þess að ég hafði fyrr um daginn fundið mjög sterka gaslykt við eldavélina. Klukkutíma seinna komu tveir gaskarlar til okkar með svona græju sem lítur út eins og Geiger-teljari og tikkar ef það er gas í loftinu.

Þeir fundu gasleka fyrir aftan vélina, og ég var ekkert smá ánægð að ég skuli hafa hringt í þá, því að íbúðin hafði víst verið tikkandi tímasprengja! Gaurarnir voru líka hinir hressustu, spurðu okkur hvort við hefðum verið að poppa og ég sagði þeim að ég hefði keypt mér örbylgjuofn. Þeir gerðu líka svaka grín að öllu poppinu sem hafði safnast fyrir inni í eldavélinni, þar sem allar gasleiðslurnar eru. Fannst þetta eitthvað fyndið. Núna er splunnkuný slanga (flexhose uppá ensku) sem liggur úr gasinntakinu yfir í eldavélina. Júhú!

Eftir að þeir fóru bauð ég Loru upp á maltesín, og hún kylliféll fyrir því. Það verður ekki annað sagt um hana en að hún sé skynsöm kona. Síðan kjöftuðum við til miðnættis, og núna er ég á labbinu að gefa frumunum mínum að borða.

Sumsé, stórfínn dagur!

Posted by erna at 01:02 FH