Föstudagur, 10 janúar, 2003
Bjórkvöldseftirköst

Blehhh... Ég er pínu slöpp núna, nenni ekki að drattast á labbið.... Ástæðan? Jú, mikil gleði á bjórkvöldi í gær, með Íslendingunum. Það var fámennt, en mjög góðmennt.

Það var pínu fyndið, það mætti kani á svæðið sem er hálfur Íslendingur, mamma hans er frá Vestmannaeyjum. Gaurinn var nú frekar utanveltu af því að hann talar ekki Íslensku. Ég spjallaði aðeins við hann, svona um Eyjar og svona. Hann var líka með myndir af öll skyldfólkinu á Íslandi, af því að hann var að vona að við þekktum einhvern á myndunum. Hann er víst á leiðinni til Íslands fljótlega, en hann langar ekki að búa þar. Ástæðan: Það eru bara sex sjónvarpsstöðvar á Íslandi, en hann getur ekki lifað án sinna hundrað og tuttugu stöðva takk fyrir! Æji, hann var pínu skondinn.

Annars var bara mjög gaman, allt skemmtilegasta fólkið (eða svotil) mætt á svæðið. Það spurðu náttúrulega allir eftir Merði, hans er sárt saknað í borginni. Þegar ég fór og fékk mér pitsusneið á leiðinni heim, spurði meira að segja kallinn á pitsastaðnum. "Where husband? Sleeping?"

Posted by erna at 11:20 FH