Ég er búin að sitja sveitt við í marga tíma að undirbúa labbfund. Ég er búin að skanna inn gel eftir gel og filmu eftir filmu og fara yfir allt sem ég er búin að vera að gera undanfarið hálfa árið.
Þetta er kannski ekki skemmtilegasta hliðin á rannsóknarvinnunni, en ég er þó búin að komast að ýmsu í dag. Ég hef nefnilega aldrei gefið mér tíma til þess að setjast niður og virkilega lesa minnisbókina mína og fara í gegnum öll gögnin mín, en núna er ég komin með ýmsar hugmyndir varðandi hluti sem ekki eru alveg að ganga upp í augnablikinu. Í framtíðinni ætla ég að vera duglegri að líta um öxl og skoða gögnin mín öll í einu þegar tilraunirnar virka ekki.
Ég á hins vegar bara eftir að gera eina tilraun um helgina, sem á eftir að taka allan morgundaginn, en á meðan ætla ég að æfa fyrirlesturinn minn. Á mánudagsmorguninn er svo stóra stundin, þá fá allir beyglur í mínu boði og fá að hlusta á alla sólarsöguna. Verst að eiga ekki flatbrauð og harðfisk til að gefa liðinu.
Á þriðjudaginn ætla ég svo að taka mér frí til þess að vera með elsku Merði, en hann á pantað flug til Íslands á miðvikudaginn. Ég veit þið hlakkið öll til þess að hitta hann, en það verður pínu erfitt að vera án hans hér fram á haustið.