Laugardagur, 30 nóvember, 2002
Refreshing..

Ég varði deginum í dag með Ásthildi vinkonu, en hún var í stuttu stoppi á Manhattan.

Við hittumst niðri á Grand Central Terminal og röltum út og skoðuðum jólaskraut á 5th Avenue og töltum inn að Rockerfeller Center og kíktum á jólatréð. Síðan lá leiðin niður í SoHo, með stuttu stoppi í South Street Seaport.

Við röngluðum um SoHo og window-sjoppuðum á fullu. Ásthildur dró mig inn í allar dýru búðirnar og við dáðumst og skoðuðum og strukum óteljandi flíkur.

Við kíktum líka á hið ungverska Kavehaas og fengum okkur hádegisverð og spjölluðum. Þvínæst tók við meira gluggasjopp og rölt. Við hittum líka Óla og Ólöfu á kaffihúsi og spjölluðum, áður en Ásthildur dreif sig til Conneticut með sexlestinni.

Þetta var alveg frábær dagur, mikið spjallað og spekúlerað. Ég er alveg gersamlega endurnærð eftir að hitta hana Ásthildi, en hún er alltaf svo hress og jákvæð =) Ekki leitt að búa í borg sem hún heimsækir svo reglulega!

Posted by erna at 10:33 EH
Föstudagur, 29 nóvember, 2002
Kuldi á Þakkargjörðarhátíð

Brrrr...rrrr... Það var pínu kalt í þegar við vöknuðum á hátíð þakklætis og kalkúna hér í borginni sem þykist aldrei sofa. Við byrjuðum daginn á því að rölta í vínbúð niðri á sirka hundrað við Broadway og kaupa vínbirgðir fyrir kvöldið. Einu opnu búðirnar voru vínbúðir og matvöruverslanir.

Veðrið var með besta móti, því að þó að það væri kalt og pínu vindur var líka bjart. Það var líka eitthvað svo mikil ró yfir bænum þannig að ég er búin að vera full kyrrðar og róar í allan dag. Ég toppaði það með því að sofna næstum því við að lesa um slökunarstöðuna savasana í Yoga Journal.

Um fimmleytið rölti ég yfir til Adelene og Chris og hjálpaði þeim við eldamennsku og Mörður kom stuttu síðar. Verkaskiptingin við eldamennskuna var einföld. Chris sá um að ausa soði yfir kalkúninn og krydda hann, ég skar grænmeti og Adelene sá um að blanda öllu saman í dýrindis meðlæti.

Síðustu gestirnir tíndust inn og við spjölluðum yfir rauðvíni á meðan við biðum eftir matnum. Hún er snilldarinnar kokkur hún Adelene, það verð ég að segja. Með kalkúninnum, sem var algert lostæti, sörveraði hún hvítlaukskartöflumús (með hýði, namm...), kalkúnafyllingu með sellerí, bakað grænmeti og heimatilbúið trönuberjahlaup með appelsínubragði. Í eftirrétt fengum við svo hina hefðbundnu graskersböku með ís.

Við sátum frameftir og spjölluðum og drukkum enn meira rauðvín og svo kaffi, sem var kannski ekki svo sniðugt...

Úff, þetta er eins og að hafa tvenn jól á ári! Ég var alveg svona jólasödd eftir matinn. Svo drakk ég allt of mikið kaffi, þannig að ég er enn á fótum þegar Íslendingar eru að vakna í morgunsárið.

Posted by erna at 04:46 FH
Miðvikudagur, 27 nóvember, 2002
Linsubaunakjamms

Ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að taka hinn gómsæta linsubaunarétt bóndans með mér í vinnuna til þess að borða í nesti. Málið er að þósvo að okkur finnist þessi réttur ljúffengur vekur hann upp misjafnar tilfinningar hjá þeim sem horfa á mann borða hann, því hann lítur svona eiginlega út eins og hnausþykkar baunir út dúettnum "saltkjöt og baunir". Mér finnst ekkert voðalega gaman þegar fólk grettir sig í viðbjóði þegar ég borða.

Málið með mig er að mér finnst einfaldur matur góður, rétt eins og litlum krökkum. Mér finnst þess vegna langbest að borða pottrétti (og fiskibollurnar hennar mömmu) kartöflumús skorar hátt og svo svona linsubaunaréttur sem lítur út eins og matur sem er útbúinn handa litlum börnum með engar tennur.

Það er þó að minnsta kosti gott að ég þarf ekkert að breyta um mataræði þegar ég verð gömul og seníl og missi allar tennurnar.

Posted by erna at 10:02 FH
Þriðjudagur, 26 nóvember, 2002
Pretend Thanks Giving og meira át...

Eftir að ég skrifaði síðustu færslu á sunnudaginn fór ég til Adelene, en þar var Lora fyrir. Þær voru í óða önn að búa til tvenns konar kartöflumús, því að Andrew og Brook héldu "Pretend Thanks Giving" um kvöldið. Brook hafði nefnilega fengið 11 punda kalkún gefins frá vinnunni sinni, og þau eru bæði á leiðinni heim til fjölskyldna sinna um hátíðarnar, þannig að það var ekki um annað að ræða en að elda hann.


Kartöflumýsnar voru báðar frábærar. Önnur var með venjulegum kartöflum með hýðinu á (namm, mér finnst það svo gott) og alveg hrúgu af hvítlauk. Hin múslan var með sætum kartöflum, rauðvíni, hunangi og kanil... jummí. Kalkúnninn var fínn, en ég er reyndar ekki mikið fyrir kalkún, rétt nartaði í hann. En meðlætið var þeim mun betra.

Eftir matinn fórum við í einskonar orðaleik, sem ég man ekki hvað heitir, en það skiptir ekki máli, því að ég var svo léleg í honum að ég skíttapaði... =(

Í gærkvöld, svona rétt þegar ég var að jafna mig á öllu átinu á sunnudaginn, bauð Carol (prófessorinn minn) öllu labbinu út að borða, til þess að kveðja Vanesu *glott*. Við fórum á stað á Broadway og 90. stræti sem heitir Carmines og sörverar ítalskan mat. Maturinn var fínn, en þar sem ég er lítið fyrir ítalskan þá skoraði hann nú sennilega hærra hjá öðrum gestum staðarins! Það var samt mjög gaman að fara með öllum svona út að borða og allt var orðið jólaskreytt á staðnum og voða hátíðlegt.

Í kvöld þarf ég svo ekki að elda heldur, því bóndinn tók það að sér, og því mun bíða mín dýrindis linsubaunaréttur þegar ég kem heim af labbinu í kvöld.

Posted by erna at 06:51 EH
Sunnudagur, 24 nóvember, 2002
Ofurverslunarleiðangur...

Við Adelene og Ragan fórum saman í Fairway í dag. Þetta var eiginlega frekar skondið, því Adelene var að tala um það á föstudaginn að hún ætlaði í Fairway, sem er mjög stór stórmarkaður á 125 stræti (á NY mælikvarða, ekki á almennan amerískan mælikvarða.). Áður en hún vissi af var fólk farið að biðja um að fá að koma með, þannig að um tíma leit út fyrir að það væri stór hópur af fólki sem færi saman að versla í dag. Við vorum að grínast með það um tíma að þegar tilvonandi fyrsta árs nemar koma í viðtöl í febrúar og fara að spurja okkur hvað við gerum okkur til skemmtunar gætum við sagt að við hittumst stundum í Fairway seinni partinn á sunnudögum og héngum þar....

Reyndar er ástæðan fyrir þessum mikla áhuga sú að maður getur keypt alveg gommu og látið senda það heim til sín fyrir fjóra dollara. Það hlýst ótvíræð hagkvæmni af því að fara þá nokkur saman og gera stórinnkaup og láta svo senda það til eins úr hópnum þar sem við búum öll mjög nálægt hverju öðru.

Ragan var bara að kaupa þetta venjulega, kornflex brauð og núðlusúpur, en ég og Adelene, ásamt flestum þeim sem voru í búðinni, vorum að versla inn fyrir Thanksgiving. Við keyptum fulla kerru af vörum fyrir aðeins 140 dollara, mestu kjarakaupin voru fólgin í kalkúninum, sem vó 12 pund og kostaði 15 dollara. Ég verð að segja að ég varð alveg hvumsa, ég bjóst við að hann væri 5 sinnum dýrari.

Það er því óhætt að segja að maður hafi grætt á tá og fingri í dag.

Posted by erna at 05:46 EH
Laugardagur, 23 nóvember, 2002
Þynnka

Það er ekki mikið fyrir orkunni að fara á þessu heimili í dag. Það var happy hour hjá líffræðideildinni í gær og eftir hann fórum við Mörður heim til Loru, en þar voru fyrir Emily og Adelene, og við sátum að sumbli framundir morgun.

Meðal annars ákváðu vinkonur mínar að þær yrðu að fara til Íslands einhvern tíman, til þess að sjá bjartar nætur og Íslenska reðursafnið, en það var einmitt heimildarmynd um það í fyrradag á HBO. Ég lofaði þeim að ef þær kæmu til Íslands, myndi ég gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að þær kæmust í lundaveislu, fengju að smakka hreindýrakjöt, (nema Lora, hreindýr eru uppáhalds dýrin hennar og hundurinn hennar heitir Rudolph) og auðvitað mysing, súrt slátur, harðfisk og hákarl. Ég vona að ég sé ekki að lofa upp í ermina á mér. Þær spurðu mig líka hvort það væri satt að Ísland væri annar stærsti framleiðandi banana í Evrópu. Vúps, einhver hefur verið að skemmta sér við að segja lygasögur....

Við komum seint heim, en þrátt fyrir það spratt Mörður á fætur eins og gormur klukkan sjö í morgun og fór á Nevada Smiths að horfa á boltann. Það þarf varla að taka það fram að hann er sofandi núna, en ég er að fara á labbið og gefa frumunum mínum að borða... Eftir það ætla ég að gefa kallinum mínum að borða.

Posted by erna at 04:36 EH
Föstudagur, 22 nóvember, 2002
Prótínhreinsun

Hah... var að lesa færsluna hans Bjarna að Google elski hann og datt svona í hug að fara á Google og leita að prótínhreinsun. Það koma hvorki meira né minna en þrjú hitt á þetta blogg, og ekki eitt einasta annað! Mér finnst þetta nú fullmikil ábyrgð, að vera einasta heimild Google um prótínhreinsun á íslensku.

Posted by erna at 01:06 EH
Fimmtudagur, 21 nóvember, 2002
Proctoring

Næs, ég fór snemma heim í dag. Bara slauffaði því sem ég ætlaði að gera í kvöld, og fór heim og horfði á Friends og kjáftaði við Ástu systur á emmessenn.

Ég ætlaði að vera komin enn fyrr heim, en var kölluð í yfirsetu á prófi, en ég var nú samt komin heim klukkan sjö. Það er ótrúlegt hvað þessir krakkar eru kræfir við að spurja út í prófið. Sem betur fer var kallað í mig óvænt, þannig að ég var ekki búin að lesa prófið og gat bara borið því við og sagst ekki getað hjálpað þeim ef þau voru of kræf... Ég er reyndar að spá í hvort ég ætti að vera aðstoðarkennari í eitt misseri einhvern tíman, svona til þess að fylla uppí kennslukvótann í staðinn fyrir að fara yfir próf. Ég held að það sé langtum skemmtilegara, en líka miklu, miklu tímafrekara.

Jæja, núna ætla ég að fara að lesa vísindagreinina sem ég tók með mér heim af labbinu, ekki veitir af að fara að herða mig í lestrinum þessa dagana. Ussusvei ég er búin að vera svo slöpp í greinalestri.

Posted by erna at 09:06 EH
Miðvikudagur, 20 nóvember, 2002
Work and grasswiddow

Úff, það er frekar mikið að gera þessa dagana. Það eru allir eitthvað svo eftirá á labbinu af því að við náðum ekkert að vinna föstudag, laugardag eða sunnudag vegna helgarferðarinnar. Þess vegna eru allir á fullu að reyna að koma einhverju í verk. Ég var mætt klukkan rúmlega níu í morgun, og er hér enn klukkan tíu, þurfti meira að segja að sleppa Girl's arts and crafts club und alles....

Ég er eiginlega að byrja að stressast aðeins fyrir labbfundinn sem ég á að halda í desember (nánar tiltekið seinnipart dags á Þorláksmessu), en mér finnst ég ekki vera komin með neitt í hendurnar til þess að sýna. Það tekur allt svo LAAAANGAN tíma... Ég þarf samt að passa mig að vinna ekki yfir mig =)

Ég var að fá þær góðu fréttir að Ásthildur vinkona verður í New York/Conneticut í næstu viku, það verður frábært að hitta hana!

Það er líka orðið ljóst að Mörður er að flytja heim fram á haustið, en hann er að sækja um í mastersnám í nokkrum skólum í borginni og stefnir á að hefja nám næsta haust. Hér er hins vegar enga vinnu að hafa, þannig að hann ætlar heim að freista gæfunnar. Mjamm.

Posted by erna at 09:58 EH
Sunnudagur, 17 nóvember, 2002
Helgin

Úff, þá er ég komin heim eftir erfiða en skemmtilega helgi. Ég er vægast sagt dauðþreytt eftir líffræðifyrirlestra og skemmtanir helgarinnar.

Við vorum komin upp í Arden House seinnipartinn á föstudaginn. Þetta hús er gamalt ættaróðal sem nú er í eigu Columbia. Við röltum um húsið fyrst eftir að við komum, og það má segja að það sé hið mesta völundarhús, með göngum sem liggja ekki að neinu og hurðum sem opnast að engu. Og ekki má gleyma dimma turninum, í stiga hans voru kóngulóavefir og mygla, en efst var læst hurð og þaðan kom dauft ljós undan þröskuldinum. Ég er sannfærð um að hinn rétti eigandi hússins hefur verið læstur þarna inni undanfarin fimmtíu ár...

Við borðuðum þríréttaðan kvöldmat og svo hófst ráðstefnan og stóð langt frameftir kvöldi, en eftir það byrjaði fjörið, með opnum bar og stuðtónlist. Það var semsagt frekar erfitt að vakna í morgunmat og fleiri fyrirlestra klukkan hálfátta á laugardagsmorguninn.

Seinnipartur laugardagsins (eftir aðra þríréttaða máltíð) var frítími og við fórum nokkur saman í göngutúr í skóginum, það var þoka og rigning og alveg lygnt, og við óðum haustlaufin í ökla. Flestum fannst reyndar of kalt nema mér og Adelene, en það er ekki alveg að marka, Vasoo er til dæmis indverji og henni finnst kalt um leið og hitinn fer niður fyrir 20°C.

Eftir kvöldmat var svo sama dagskrá og á föstudag, fyrirlestrar og svo partí. Sumir bekkjarfélagar mínir fóru reyndar út í skóg að leita að sasquatch, eða Big Foot eins og sumir kalla hann. En að þeirra sögn var svo mikil rigning að meira að segja sasquatch var heima hjá sér, þannig að ekki hittu þau félagann.

Það urðu líka smá skandalar varðandi prófessor í deildinni "uptown" sem var gestafyrirlesari hjá okkur. Hann er greinilega að fást við einhvers konar "mid life crisis" kallgarmurinn. Ætli prófessorum verði kannski bannað að mæta næst vegna skandala?

Það var, eins og gefur að skilja, enn erfiðara að vakna í gærmorgun í fyrirlestra og morgunmat, en ég hafði það samt af. Seinnipartinn í gær var svo brunað í bæinn, en það var ólíkt hljóðlátara í rútunni á leiðinni heim heldur en á leiðinni uppeftir á föstudaginn. Ég verð örugglega alla vikuna að ná mér eftir ósköpin....

Posted by erna at 06:35 EH
Laugardagur, 16 nóvember, 2002
Einn heima

Erna fór á ráðstefnu með líffræðideildinni í gær og ég er búinn að vera einn heima í meira en sólarhring. Nokkuð vel af sér vikið. Ég er frekar svangur og er að spá hvað maður gerir í því. Erfitt að vera einn og vita ekkert hvað maður á að gera þegar svona vandamál koma upp. Kannski ég hringi bara í mömmu, hún hlýtur að kunna einhver ráð.

Ég sit og er að reyna að einbeita mér við GMAT æfingar. Lára skemmdi þetta alveg fyrir mér með því að bjóða mér í partý í kvöld. Nú verð ég að finna mér einhver föt til að vera í. Ég er að reyna að átta mig á því hvort ég eigi að láta hunk lúkkið ráða ferðinni eða eitthvað klassískt. Einnig gæti ég farið í eitthvað klassískt en sleppt því að hneppa efstu fjórar til fimm tölurnar á skyrtunni. Það er svolítið klassískt - hunk lúkk. Svo væri kannski sniðugt að raka sig.

Posted by mordur at 03:52 EH
Fimmtudagur, 14 nóvember, 2002
Departmental Retreat

Jæja, skapið er aðeins betra núna sem betur fer =)
Ég er á labbinu að gera síðustu tilraunina fyrir helgina, af því að á morgun, föstudag fer ég á s.k. Departmental Mini Symposium í Arden House. Það verður sennilega svaka stuð. Það verða 2-3 manneskjur frá hverju labbi sem halda fyrirlestur og svo verður djammað bæði föstudags og laugardagskvöld. Jeijjjj... =)

Því miður verð ég að skilja Mörð eftir heima, því að í ár megum við ekki taka makana með, vegna skanda sem urðu síðast. (Ég er heldur ekki viss um að Mörður hefði neitt gaman af því að hlusta á líffræðifyrilestra í heila helgi).

En alla vegana, þá er Mörður búinn að lofa að halda úti bloggi yfir helgina, því ég blogga ekki aftur fyrr en í fyrsta lagi á sunnudaginn.

Posted by erna at 09:34 EH
Aumingi með hor og slef...

Ég sofnaði ekki fyrr en undir morgun, og mætti ekki fyrr en klukkan eitt á labbið. Mér finnst ég vera orðin svo mikill aumingi eitthvað. Ég sem elska að mæta snemma í vinnuna og koma milljón hlutum í verk, get ekki drattast á fætur fyrr en undir hádegi. Svo þegar ég er loksins komin á fætur meika ég ekki að byrja teygjuæfingaseríuna mína þannig að ég hangi bara endalaust. Svo loksins dríf ég í að gera æfingarnar og mæti allt of seint á rannsóknarstofuna og enda á því að vera þar langt frameftir.

Það sem er mest pirrandi við þetta er eiginlega að þegar ég kem heim er ég orðin allt, allt of þreytt og frústreruð til þess að elda ofaní okkur almennilegan mat, þannig að ég er búin að lifa á beyglum og spagettí og núðlusúpum undanfarið. Mig er farið að dreyma baunarétti og soðið grænmeti, ég er svo á þörfinni fyrir það.

URRRRRRRRRRRRRRRRR... Ég veit að það þýðir lítið að grenja bara og vorkenna sjálfri sér, en það er eins og ég sé föst í einhverju óþolandi fari. Ég veit að ef ég bara gæti farið að hlaupa aftur og æfa eins og mother f***er myndi þetta lagast á augabragði, eins og alltaf, en ég bara má það ekki. Kannski ég ætti bara að fara að synda lengur!

Posted by erna at 02:54 EH
Sleepless in NY

Urrr... ég get ekki sofnað. Kannski ég ætti bara að sleppa því að fara að sofa og mæta snemma á labbið...

Posted by erna at 03:37 FH
Þriðjudagur, 12 nóvember, 2002
Makar auka bakverk...

Nature var að senda mér þessa grein í pósti. Nú er það víst bara vísindalega sannað að makar bakveikra gera bara illt verra með nærveru sinni. Siggi var reyndar búinn að benda Merði á þetta sem óendanlega góða afsökun fyrir því að verja öllum laugardögum á pöbbnum að horfa á boltan yfir "einum" köldum... Ekki það að nokkuð hafi stöðvað hann í því hingað til=)

Mér finnst þessi rannsókn reyndar stórmerkileg, því eins og við vitum sennilega öll, þá erum við misviðkvæm fyrir sársauka, en þessi rannsókn er svona eins og fyrsti liðurinn í að finna einskonar umhverfisáhrif sársaukaskynjunar.

Mér fannst líka svolítið merkilegt að lesa að mýs sem gengjust undir skurðaðgerð stuttu eftir fæðingu hefðu hærri sársaukamörk en ella. Mér finnst þó heldur langsótt að ætla að heimfæra þá rannsókn beint á okkur mannfólkið, því við erum jú ekki mýs.

Mig langar að lesa meira um svona rannsóknir. Kannski það sé hægt að útskýra það að hluta til með umhverfisáhrifum hvers vegna sumir t.d. treysta sér ekki til þess að mæta í vinnu og líður virkilega illa af veikindum sem aðrir varla finna fyrir. Sjálf hef ég verið að uppgötva undanfarna mánuði að mér er í raun búið að vera illt í bakinu annað veifið í mjög mörg ár, en ég bara skynjaði sársaukann eiginlega ekki, bara lét eins og hann væri ekki þarna og hélt alltaf að ég hefði legið eitthvað vitlaust í svefni eða eitthvað álíka. Undanfarna mánuði hef ég hins vegar þurft að gefa sjúkraþjálfanum mínum skýrslu tvisvar í viku um það hvar ég hef nákvæmlega fundið til og viti menn, svona fyrir tveimur vikum síðan fór eiginlega að renna upp fyrir mér ljós hvað þetta væri búið að vera í gangi lengi. Það má eiginlega segja að þessi sjúkraþjálfun hafi gert mig sársaukanæmari í bakinu!

Ég er sko alveg á því að sársauki er að miklu leyti andlegt ástand. Kannski maður ætti að fara að taka þetta jóga alvarlega?

Posted by erna at 11:34 EH
Dagurinn í dag...

Jæja, þetta er nú búið að vera alveg hreint afskaplega ágætur dagur. Ég skreið reyndar ekki í vinnuna fyrr en um tíuleytið eftir hefðbundnar fettur og brettur á stofugólfinu. Ég komst að því í dag að erfiðleikarnir sem ég er að glíma við varðandi hreinsunina á prótíninu mínu eru ekki mér að kenna. Ég var hálfpartinn að vona að ég væri að gera eitthvað vitlaust, því það hefði sennilega ekki verið erfitt að komast að því hvað það væri og kippa því í lag. En neibbs, ég er búin að vera að hreinsa svipað prótín og það gengur vel, á sama tíma og ég fæ litlar heimtur af afbrigðinu sem ég hannaði. Þannig að ég er minni klaufi en ég hélt =) En vandamálið verður erfiðara fyrir vikið. Smá búst fyrir egóið samt...

Við lentum líka í hörkurökræðum um fyrirlestur John Sulstons, meira að segja Carol varð forvitin og mætti á svæðið til þess að ræða málið við okkur.

Seinnipartinn fékk ég svo að skoða sjálflýsandi frumur í smásjá, en ég er greinilega meiri klaufi við mótefnalitun en prótínhreinsun, þannig að þó að frumurnar mínar hafi verið bláar og grænar og ósköp fallegar, þá dugði það ekki alveg til.

Til þess að gera ágætis dag afbragðsgóðan synti ég hvorki meira né minna en 1500m skriðsund án þess að stoppa og fanns ég hreinlega svífa eftirá, það tognaði svo úr bakinu á mér.

Nú er ég hins vegar komin heim og ætla mér að verja kvöldinu í lestur um mótefnalitun. Jibbí og jeijjjjj... kannski fæ ég einhverja hugmynd um úrbætur...

Posted by erna at 09:38 EH
Mánudagur, 11 nóvember, 2002
Nóbelsbull

Ég fór á fyrirlesturinn hjá John Shulston seinnipartinn í dag, en hann er einmitt nóbelsverðlaunahafinn sem ég var að skrifa um um daginn.

Hann var að gefa út bók og fjallaði fyrirlesturinn um efnið sem hann tekur fyrir í bókinni. Bókin heitir "The Common Thread". Ég veit samt ekki alveg hvað bókin fjallar um, en fyrirlesturinn var frekar lélegur. Bla, bla... það er eins og þegar menn fá nóbelinn þá geti þeir bara sest í dómarasæti gagnvart því sem er að gerast í vísindaheiminum og að allir eigi bara að segja já og amen við því.

Hann varði töluverðu púðri í að tala um það hversu lélegt átak Celera genomics hafi verið, fyrir það fyrsta út af því að þeir seldu upplýsingarnar sem þeir öfluðu, og í öðru lagi fyrir það að þeir hafi aldrei ætlað sér að "klára" að raðgreina erfðamengi mannsins. Klára í merkingunni að fylla í allar eyður í röðinni. Hann var sjálfur yfir Sanger Center sem var stærsta miðstöðin í opinbera raðgreiningarátaki erfðamengis mannsins. Og þar af leiðandi var hann í beinni samkeppni við Celera. Hann talaði bara um það hversu hræðilegt það hefði verið að fá þessa samkeppni, því að þá hafi allir farið að flýta sér og að gögnin í Human Genome Project hafi snarversnað. Hann ætti nú bara að vera pínu þakklátur líka, því ef Craig Venter ásamt Celera hefðu ekki komið fram á sjónarsviðið á sínum tíma, væri raðgreining erfðamengisins varla hálfnuð. Craig Venter var nú ekki svona ómálefnalegur þegar hann hélt fyrirlestur í Columbia í vor.

Svo minntist hann líka á breska gagnagrunninn, sem á að vera keppinautur íslenska gagnagrunnsins (á Heilbrigðissviði=)), og tók það náttúrulega fram að sá breski væri opinn öllum og miklu betri því í honum væru lífsstílsupplýsingar...

Það tók út fyrir allt þegar hann byrjaði að tala um vondu, vondu lyfjafyrirtækin sem væru að fá einkaleyfi á hinum og þessum genum, þannig að aumingja fátæka fólkið í þróunarlöndunum myndi aldrei getað grætt neitt á þessarri erfðafræðivitneskju sem við höfum aflað. Og að þessir illu lyfjarisar skuli voga sér að verja 30% af veltu sinni í markaðssetningu og stjórnun fyrirtækisins...

Ég er reyndar alveg sammála honum um að hún er ekki góð sú staða sem komin er upp í læknavísindum í dag, að enginn rannsakar sjúkdóma eins og berkla og holdsveiki (og svo mætti lengi upp telja), sem hrjá fólk í fátækum löndum. Það er vandamál sem þarf að leysa, en myndin sem Dr. Shulston dró upp var svo brengluð. Ég sé ekki alveg að það eigi eftir að banna eða draga úr einkaleyfum tengdum lækningum, það eru jú þessi einkaleyfi sem eru stór hluti hagnaðarins sem af rannsóknunum hlýst, og þar af leiðandi eru þau eins konar afl sem knýr áfram þekkingarleitina í dag. Og það ekki bara í einkageiranum, því að til dæmis á deildin sem ég er að læra hjá fjölmörg patent.

Ég held að ef John Shulston ætlar að ná árangri í baráttu sinni fyrir opnari upplýsingamiðlun í vísindasamfélaginu, ásamt því að jafna hlut ríkra og fátækra í ávinningni rannsókna, verði hann hins vegar að setja mál sitt fram á málefnalegri hátt, og vara sig á að vera með endalausar ýkjur og rangfærslur.

Ég ætla nú samt ekki að taka jafndjúpt í árinni og einn félagi minn hér í deildinni sem sagði: "What a commie..." um John... Þið getið giskað á hvers þjóðernis sá gaur er.

Posted by erna at 11:39 EH
Indian summer

Hér í New York er búið að vera indian summer undanfarna daga. Hitinn er búinn að vera um 17 gráður á honum selsíus og í dag stefnir allt í tuttugu gráðurnar og þrumur og eldingar og tilheyrandi dramatík.

Ég valdi semsagt algerlega ranga helgi til þess að sitja inni yfir tölvunni að uppfæra heimasíður =( En ég er nú búin að njóta þess að geta trítlað á labbið á stuttermabolnum... Ef það verður ekki farið að rigna seinnipartinn er ég að hugsa um að borða hádegismatinn minn úti. Þvílíkur lúsus!

Posted by erna at 10:07 FH
Sunnudagur, 10 nóvember, 2002
Dauð... gersamlega ... hreinlega...

Blehhh.. mikið er ég fegin núna að vera ekki kona sem situr fyrir framan tölvuskjá alla daga. Mikið fer það með sálina á mér. Ég er búin að vera að vinna í TA verkefninu mínu i allan dag, en það felst í því að uppfæra fyrirlestra í Intro Bio kúrsinum. Ég er búin að sitja hér við tölvuna í þrettán klukkustundir og bara get ekki meir. Ég ætlaði að koma mikið meiru í verk, þess vegna fór ég ekkert á labbið, ætlaði bara að klára þetta í eitt skipti fyrir öll.

Ætli ég drífi mig ekki bara í rúmið svo að ég geti haldið áfram í fyrramálið, en á morgun verð ég svo að fara á labbið og byrja prótínhreinsun.

Posted by erna at 01:12 FH
Laugardagur, 9 nóvember, 2002
Hjálp! Einhver tölvusnilli plís..=)

Ég er í svolitlum vandræðum með Internet Explorer. Málið er að ég er að vinna í vefsíðugerð fyrir skólann, og þarf nauðsynlega að geta skoðað frumkóðann á síðunum sem ég er að nota. Hins vegar virkar ekki hjá mér að fara í View ----> Source, það bara kemur aldrei neitt. Þetta er ekki vegna þess að síðurnar séu læstar, því að ég get ekki einu sinni gert þetta fyrir mína eigin heimasíðu.

Veit einhver hvað gæti verið að? Ég er búin að reyna allt sem mér dettur í hug, en allt kemur fyrir ekki, aldrei lagast þetta. Plís endilega sendið mér tölvupóst ef þið hafið hugmynd um hvað sé til ráða.

Posted by erna at 02:11 EH
Bananabrauð...

Nammi, namm. Nú er sko góð lykt í íbúðinni hjá okkur, því að ég er að baka bananabrauð. Þeir voru komnir á tíma blessaðir bananarnir, þannig að ég ákvað að skella í köku.

Mörður er hins vegar farinn að sofa, því hann þarf að vakna eldsnemma til þess að sjá leikinn á morgun. Líverpúl eitthvað... veit ekki meir! Ætli ég hangi ekki á fótum eftir brauðinu og lesi eina grein eða svo á meðan. Á morgun er svo mikilvægur dagur á labbinu og mikilvægt að ekkert klikki. Niðurstöðurnar koma svo á sunnudaginn.

Posted by erna at 12:54 FH
Föstudagur, 8 nóvember, 2002
Loðnir leggir?

Unnur skrifar um rakstursbann í sturtum Baðhússins. Ég er mest hissa á því að þetta sé svona nýtilkomið bann. Mér finnst mjög svo ólekkert að sjá konur raka sig í sturtu við hliðina á mér og ég myndi aldrei bjóða öðru fólki upp á það. Mér finnst meira ólekkert að horfa á rakstursathafnir kynsystra minna en að horfa á loðna leggi þeirra.

Það getur líka vel verið að þetta skapi ekki eins mikið af stíflum í sturtunum og síðhársþvottur, en ekki get ég ímyndað mér að það sé gaman að þrífa gólfið eftir þessar athafnir.

Ég get nú kannski ekki mikið sagt, því ég hef aldrei rakað á mér fótleggina þó ég sé komin vel á tuttugasta og níunda vetur. Það hefur ekki einu sinni hvarflað að mér að eyða tíma mínum í þann óþarfa, því flestöll mín líkamshár eru stödd fyrir ofan eyrun á mér =) og ég get alveg verið í svörtum sokkabuxum þrátt fyrir að vera með ljós hár á leggjunum...

Posted by erna at 03:47 EH
Nuyorican...

Það var geggjað stuð hjá okkur Merði í gærkveldi. Við drifum okkur lengst niður í East Village á lifandi djass á stað sem heitir Nuyorican Poets Cafe.

Við komum rétt fyrir klukkan tíu, og vorum fyrst í hús, en þá var ekki einu sinni búið að róta upp á svið. Staðurinn er mjög hrár, úti var krossviðsplata þar sem búið var að mála hálfklaufalega nafnið á staðnum og inni blöstu við hráir múrsteinsveggirnir og lofthæðin var nokkrar hæðir.

Stemningin var afslöppuð, stuttu á eftir okkur settist maður við næsta borð og byrjaði að prjóna og svo smám saman fylltist salurinn. Klukkan ellefu var svo hljómsveitin tilbúin og byrjaði að spila.

Þetta var geggjað, pínu fönk/latin jazz fílíngur og brjálað djamm. Á endanum virtist helmingur fólks úr salnum vera búið að fara upp á svið og spila með þeim. Flottust var konan sem fór upp á svið og spilaði á rafmagnsfiðluna, hún Susy Hansen. Ég hef bara aldrei áður heyrt djassað á fiðlu, og hún þeyttist líka einhvern vegin um sviðið eins og strengjabrúða. Þverflautan kom líka stertkt inn.

Svei mér þá er ég er ekki bara farin að fíla djass í strimla!

Posted by erna at 09:56 FH
Fimmtudagur, 7 nóvember, 2002
Föndur

Ég dreif mig í saumó í gærkvöldi, þrátt fyrir þreytu og leti. Ég fann fimmtán afsakanir til þess að fara ekki að synda, þannig að ég sleppti því auðvitað. Ég meina, það er óþarfi að æfa þrjá daga í röð og svo var ég svo svöng náttúrulega... u.s.w.........
Þetta eru sko alvöru föndurklúbbar. Ég hélt áfram með trefilinn minn og Lora var að mála myndir. Hún er sko enn ekki vaxin upp úr því að gefa fjölskyldumeðlimum föndur í jólagjöf. Um helgina ætlum við svo að drífa okkur í föndurbúð niður í bæ og kaupa einhverja snilld. Veii..... það verður því brjálað stuð í saumó í næstu viku!

Posted by erna at 12:26 EH
Miðvikudagur, 6 nóvember, 2002
Nóbelssamloka?

Var að fá eftirfarandi í tölvupósti frá deildinni:

Graduate Students & Postdocs,

Would you like to have lunch with a Nobel Prize Winner on Monday?
Please email me as soon as possible to save your place.

Monday, November 11 @ 1:30pm
800 Fairchild

Justin

Það er spurning, á maður að vera svo snobbaður að maður eigi að fá sér samloku með John Sulston bara af því að hann vann Nóbelinn?

Posted by erna at 12:53 EH
Þriðjudagur, 5 nóvember, 2002
Lopi

Ekki vissi ég að lopi á ensku þýddi lopi!!! En júbbs eins og á gömlu góðu íslenskunni. Hvaðan ætli orðið sé runnið? Ætli það sé talað um "lopi socks" and "lopi sweaters"?

Verð að spurja Loru að því í girl's arts n' crafts annað kvöld!

Posted by erna at 11:02 EH
Brynja á svo góðan yfirmann =)

Ég get ekki annað sagt en að ég lifi mig alltaf inn í bloggin hjá Brynju þegar hún lýsir rannsóknarstofuvinnunni. Ég man sko sannarlega eftir því hvernig það var þegar ég tók það nærri mér að klúðra hlutunum á labbinu, því til að byrja með fannst mér ég aldrei gera neitt annað en að rústa því sem ég var að gera. Þegar maður fattar loksins að það gera allir endalaus mistök í þessum bransa, og að það er ekki maður sjálfur sem er svona óendanlega mikill klaufi og kjáni, þá líður manni mikið betur.
Ég verð reyndar oft súr enn yfir mistökum sem ég geri, en þá aðallega vegna þess að það þýðir endurtekningur á vikuvinnu eða eitthvað þannig.

Það hjálpar hins vegar alltaf að eiga góðan yfirmann, eins og Hansi sem Brynja talar um, sem bara brosir þegar hún gerir mistök og býður henni að halda áfram!

Svona yfirmaður var Þorlákur líka sem var yfir mér inni í Erfðagreiningu. Hann sagði við mig að vera óhrædd að prófa hlutina og endilega bara að gera mistök, því af þeim myndi ég læra. Er hægt að fá betri ráð frá yfirmanni sínum?

Posted by erna at 10:08 FH
Mánudagur, 4 nóvember, 2002
Skrið

Nýtt sundmet!! Ég synti 1250m skrið á þrjátíu og tveimur mínútum. Ég þarf að fara að passa mig að það fari ekki að vaxa á mig fit!

Posted by erna at 10:44 EH
B-manneskjan ég...

Gvuð hvað ég er búin að vera löt undanfarið. Ég svaf hvorki meira né minna en til klukkan hálfþrjú í gærdag! Restin af deginum fór reyndar í vinnu, þar sem ég vann að heimasíðunni í kúrsinum sem ég er að tí eija.

Í morgun vaknaði ég ekki fyrr en klukkan tíu, en ég þarf alltaf að gera æfingar á hverjum morgni í þjú korter, og svo þurfti ég náttúrulega að blogga og svara tölvupóstum, þannig að ég var ekki mætt í vinnuna fyrr en á hádegi. Þá mundi ég eftir mánudagsfyrirlestrinum og fór á hann. Það var reyndar mjög áhugavert, því að það var gaur (sem ég man ekki hvað heitir) að tala um Retinoblastomagenin og hvernig hann heldur að áhrif þeirra séu "cell non-autonomous" í fósturþroska og jafnvel í æxlisvexti. Það er mjög óhefðbundið, því hingað til hafa öll tumor-suppressor- og oncogen verið talin cell autonomous í virkni. En hann er nú ekki alveg búinn að sanna þetta enn kallinn.

Ég byrjaði sumsagt ekki að vinna fyrr en klukkan eitt, en er búin að gera alveg slatta síðan.
Á morgun verður svo aftur alvöru vinnudagur, því það sem ég hef verið að gera í dag hefur að mestu verið undirbúiningsvinna fyrir allt það sem ég þarf svo að gera í vikunni.

Það verður því að duga eða drepast í fyrramálið, það bara gengur ekki lengur að sofa frá sér alla morgna!

Posted by erna at 05:00 EH
The Comedian

Við skelltum okkur í bíó í gærkvöldi á The Comedian, sem er ný mynd um Jerry Seinfeld og er einskonar heimildarmynd um hann og hvað það er að vera grínisti.

Myndin fór hægt af stað og ég stóð mig að því að geispa og hélt að þetta yrði eitthvað súrt, en myndin vann á smám saman og var bæði fyndin og einlæg. Það var nokkuð fróðlegt að sjá svona "backstage" um hvað menn voru að tala og að sjá hvað menn voru stressaðir og óvissir um sjálfa sig, og fara svo upp á svið og láta eins og þeir eigi heiminn, eða hreinlega bara missa allt niður um sig og gleyma hvað þeir ætluðu að segja...

Mæli tvímælalaust með þessari mynd!

Posted by erna at 11:06 FH
Sunnudagur, 3 nóvember, 2002
Tónleikar, potluck og graskersskruður....

Tónleikarnir voru stórfínir! Þeir byrjuðu rólega og enduðu á brjálaðri keyrslu. Það var rífandi stemning í salnum og fólk stóð lengi og klappaði þá upp. Samt tóku þeir ekki aukalag. Pínu "pretentious".... Eins og diskurinn nýji. Hann er OK, en ekki mikið meira. Það vantar eitthvað... Einhvern kraft sem var greinilega til staðar á tónleikunum. Mjög margir tala um að það sé ótrúlega gott að læra við þessa tónlist, en ég segi nú bara: "Hvaða hrós er nú það?" Mér fannst til dæmis fínt að læra við Enju þegar ég var átján!!!

Við kíktum aðeins út með íslenska genginu eftir tónleikana, en vorum svo bara komin snemma heim.

Í dag eldaði ég svo góðan mat og fór í "potluck" til Emily, en hún á afmæli í dag. Krakkarnir ákváðu líka að skera út grasker, þósvo að Halloween sé liðið, vegna þess að ég hef aldrei gert það áður. Það var ekkert smá gaman, ég fékk svaka stórt grasker alveg fyrir mig og skóf fræin innan úr þeim og skar svo út andlit í það. Svo eftir skurðinn söltuðum við graskersfræin og bökuðum þau.

Þetta var alveg stórgott kvöld, það fóru allir á kostum og skiptust á að segja sögur af klikkuðum nágrönnum og draugasögur. Lora gersamlega átti partýið, hún er ekkert smá mikil steik sú kona, ég er enn að hlægja að sögunum hennar.....

En núna er ég komin aftur heim og ætla að drífa mig í háttinn.....

Posted by erna at 01:13 FH
Föstudagur, 1 nóvember, 2002
Leti...

Það er nú ekki búið að vera mikið bloggstuð á mér þessa vikuna. Ég er reyndar búin að vera löt við flest undanfarið. Ég er ekki búin að vinna neitt svakalega mikið, bara svona algeran lágmarkstíma og aðallega bara sofa slatta.

Ástæðan er reyndar sú að bakið á mér er aftur farið í klessu, þannig að þegar ég vakna er verulegt átak að koma mér á lappir, og ég þreytist alveg svakalega hratt í vinnunni. Akkúrat vikuna sem ég hefði átt að hætta í sjúkraþjálfun, því fyrir viku síðan var ég orðin svo góð.

Það stefnir nú samt í fínan dag í dag, því við erum að fara á Sigur Rósar tónleika í kvöld. Ekki slæmt....

Posted by erna at 09:05 FH
Mánagatan

Ég fæ nú bara nostalgíukast við lestur á öllu þessu Mánagötutali hjá honum Stefáni. Ég verð víst að hryggja hann á því að litlu flöskusafnararnir í hverfinu eru Valsarar, en það gladdi Mörð ávallt mikið. Ég vona samt þeirra Steinunnar og Stefáns vegna að þau muni búa langt frá Mánagötu 16, því ég myndi ekki vilja óska neinni manneskju það að eiga okkar fyrrverandi vonda nágranna....

Posted by erna at 08:59 FH