Mánudagur, 11 mars, 2002
Stofnfrumurannsóknir og GWB

Ég verð eiginlega að treysta því að enginn tengdur innflytjendaeftirlitinu hérna í BNA kunni íslensku, og því aðeins að tjá mig opinberlega um forseta Bandaríkjanna og hans skoðanir. Ég er eiginlega búin að komast að þeirri niðurstöðu í hugleiðingum mínum um hann, að hann sé ekkert skárri eða á nokkurn hátt öðruvísi í þankagangi en öfgasinnaður múslimi. Hann tilheyrir bara öðrum trúarbrögðum. Maðurinn er á móti fóstureyðingum, hann er á móti kynlífi fyrir giftingu, og þess vegna má ekki tala opinberlega um kynlíf unglinga og í því samhengi getnaðarvarnir og varnir gegn kynsjúkdómum. Fyrir honum er það ekki nauðsynlegt, því fólk á ekki að sofa hjá fyrr en í fyrsta lagi á brúðkaupsnóttina. Og svo er hann á móti rannsóknum á stofnfrumum manna.

Andúð hans á stofnfrumurannsóknum á sér trúarlegar rætur, því að hann telur að sérhver stofnfruma hafi, eðlis síns vegna, innbyggðan möguleika á að verða að manneskju. En samt er hann ekki á móti rannsóknum á þeim 60 stofnfrumulínum sem eru nú þegar til á opinberum stofnunum (les: opinberar stofnanir hafa milljarðatekjur af þeim), en hann vill að það verði bannað að stofna fleiri stofnfrumulínur. Þannig að hann er eiginlega að segja að það sé stundum ljótt að rannsaka stofnfrumur, en ef þær eru til fyrir, og eru verðmætar, þá megi horfa framhjá því. Hvurslags þankagangur er það?

Okkur var líka bent á athyglisverðan punkt í dag í siðfræði, og urðu nokkrar umræður í kjölfarið: Sérhver stofnfruma hefur möguleika á að verða að fullvaxinni manneskju, en þó aðeins ef að til er kona sem vill bera fóstrið í legi sínu, fullan meðgöngutíma. Þannig að með rökum sínum er forsetinn að segja að siðferðisvitund og vilji kvenna komi málinu ekki við, hann gerir ráð fyrir því að fyrir sérhverja stofnfrumu sé ávallt til staðar kona sem vilji veita henni legskjól sitt. Þessi þankagangur er sprottinn af sama meiði og andstaða hans við fóstureyðingar. Í báðum tilvikum tekur hann ekki inn í myndina þarfir og vilja kvenna og virðir þær þar með sem einstaklinga sem ekki geta borið ábyrgð á gerðum sínum.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 11:16 EH
Landslið USA í knattspyrnu

Í gær sá ég landsleik Bandaríkjanna og Ekvador í knattspyrnu. Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá knattspyrnuleik í sjónvarpi síðan ég flutti hingað. Ég trúði varla eigin augum. Ég kom mér auðvitað vel fyrir og ætlaði að njóta þess að geta loks horft á almennilegt sjónvarpsefni. Fljótt komst ég þó að því að leikurinn var hin versta skemmtun. Það voru engin færi og eintómt miðjuhark þar sem hvorugu liðinu tókst að skapa færi eða byggja upp almennilegt spil. Þulirnir voru samt alveg í skýjunum með eigin lið og töldu að þeir ættu alveg möguleika á að ná ágætum árangri í HM í sumar. Hvernig þeir komust að því veit ég ekki en ég kíkti á styrkleikalista FÍFA og komst að því að Bandaríkin eru í 13 sæti. Ég segi bara, ef Bandaríkin eru í 13 sæti á íslenska landsliðið að vera á topp tíu. Jæja þulirnir bulluðu og blöðruðu og fullyrtu að liðið þeirra hefði nokkuð sem ekkert annað landslið í heiminum hefði, baráttuanda og getuna til að ná hagstæðum úrslitum í leikjum við sterkustu lið heimsins. Úff, ég sofnaði og sá ekki endann en ég er nokkuð viss um að leikurinn hafi endað með sigri USA. Eitt núll og markið kom úr eina færi leiksins.

Ég vona að einhver fulltrúi FÍFA lesi þetta og breyti reglum sambandsins um undankeppni mótsins. Það gengur ekki að skítalið frá Ameríku komist í þessa keppni þegar mörg góð lið frá Evrópu komast ekki inn.

Áfram Atli og strákarnir. Sex eitt tap gegn Brasilíu segir ekkert, er það nokkuð?

Posted by Mordur Finnbogason at 12:21 EH