Þriðjudagur, 31 desember, 2002
Áramótaskaup!

Tíhíhí... ég sit hér á labbinu að skola Westernið mitt og viti menn, ég komst að því að ég get horft á skaupið á netinu í leiðinni... Ágætis leið til að drepa tímann, en ekkert allt of skemmtilegt skaup...

Posted by erna at 05:50 EH
Mánudagur, 30 desember, 2002
Brandari...

Ég var að fá meil frá Mödda, en hann var að panta flugmiða heim til Íslands í næstu viku. Við vorum að velta fyrir okkur hvort að það væri hagstæðara að kaupa miða fram og til baka núna og henda miðanum til baka, eða kaupa opinn miða sem hann myndi þá nota í báðar áttir. Það er eitthvað svo inngróið í mann að það sé sóun að kaupa miða fram og til baka og bara fara aðra leið...

Mörður komst hins vegar að því að opinn miði var á því sanngjarna verði 2090 Bandaríkjadalir! Skítaapparatið Flugleiðir ættu nú að vera löngu hættir að koma manni á óvart, en alltaf tekst það nú samt....

Posted by erna at 05:22 EH
Boringblogg...

Líf mitt þessa dagana er nú ekki góður bloggmatur. Það kemur mér ekki á óvart að Hel finnist það ansi tæknilegt, því ég hef ekki átt mér líf síðan á annan í jólum. Á þremur dögum er ég búin að vinna í samtals 42 klukkutíma. Ég held ég hafi ekki gert svona margar tilraunir á jafnstuttum tíma áður. Og nú er ég nýskriðin heim, aum og lúin. Ef ég verð dugleg á morgun næ ég að taka mér frí á síðasta degi ársins og fyrsta degi þess næsta =)

Posted by erna at 01:12 FH
Sunnudagur, 29 desember, 2002
Kaffi í rúmið og áfram með smérið....

Oh.. næs. Mörður vakti mig áðan með því að færa mér kaffibolla í rúmið. Hann vissi að ég þyrfti á því að halda fyrir langan vinnudag framundan.

Í gær langaði mig mest að henda bara öllu draslinu mínu og bara hætta þessu öllu. Svona er þetta, það eru endalaus ljón í veginum í þessum rannsóknabransa og þegar maður situr inn í dimmu smjásjárherbergi á miðnætti á laugardagskvöldi eftir þrettán tíma vinnudag, er dómgreindin kannski ekki alveg fullkomin!

En áfram með smjérið. Ef ég verð dugleg í dag og á morgun get ég tekið mér frí á gamlársdag og nýársdag og líka eitthvað um næstu helgi áður en Mörður fer til Íslands. Eigum við ekki að segja að það haldi mér gangandi frekar en vonin um glæstar rannsóknarniðurstöður!

Posted by erna at 09:43 FH
Laugardagur, 28 desember, 2002
Indira

Hann Mörður gaf mér svo frábæra bók í jólagjöf. Ég er eiginlega á því að hann sé farinn að þekkja mig betur en ég geri sjálf! Hann rakst á þessa bók í glugganum á NYPL (New York Public Library) hérna í vetur og elti hana uppi handa mér, en hún var víst uppseld um mestalla borg!

Þetta er bókin Indira, eftir hana Katherine Frank, og er ævisaga Indiru Gandhi. Ég er búin að vera gersamlega límd yfir bókinni undanfarið, get til dæmis ekki lagt hana frá mér til að fara að sofa á kvöldin. Bókin er bæði mjög vel skrifuð og fjallar náttúrulega um efni sem mér er mjög hugleikið.

Það rifjaðist meðal annars upp fyrir mér að fyrsta fréttin sem ég man eftir að hafa horft á sem krakki og velt fyrir mér var bálför Indiru Gandhi 1984 þegar ég var átta ára. Ég man eftir að ég sat í stofunni á Silfurbrautinni á Höfn í Hornafirði og mamma útskýrði fyrir mér að það væri verið að brenna merka konu og að þetta væru jarðarfarasiðir í hennar landi. Síðan þá hefur Indland jafnan vakið hjá mér forvitni, og ekki minnkaði hún í trúarbragðafræðslunni sem ég fékk þegar ég var þrettán ára. Ég heillaðist gersamlega að Mohandas Gandhi, en hann hefur stórt hlutverk í ævisögu Indiru.

Það að bók valdi manni svefnskorti hýtur ávallt að vera góður dómur um hana!

Posted by erna at 11:46 FH
Föstudagur, 27 desember, 2002
Líf?

Bleh.. ég á mér sko ekkert líf þessa dagana, alla vegana ekkert að ráði. Ég var að koma heim eftir fjórtán tíma vinnudag, klukkan ellefu að kvöldi, en helgin fer í að vinna upp tíman sem ég tók mér í frí yfir jólin. Ég var að enda við að vaska upp og nú er ég að hugsa um að drífa mig í rúmið til að vera ekki þreytt á morgun, því sá dagur verður svipaður. Verst hvað þetta fer illa með bakið á mér, ég er alveg í keng =( Jógað dugar ekki eitt og sér þegar sundlaugin er lokuð.

En það stefnir allt í þónokkurn árangur í rannsóknum næstu dagana, og það er það sem heldur mér gangandi.

Posted by erna at 11:18 EH
Frumslu pummslur

Ég má bara til með að sýna ykkur litlu sætur frumurnar mínar, svona í tilefni af því að mótefnalitunin heppnaðist. Þetta bláa er kjarninn, litaður með DAPI, sem litar DNA, en þetta græna eru sömu frumurnar skoðaðar á annari bylgjulengd og þar sést staðsetning prótínsins sem ég er að skoða. Eins og sjá má er próteinið til staðar í flestum kjörnunum í myndrammanum. Er þetta ekki ÆÐISLEGT?

Posted by erna at 02:49 EH
Fimmtudagur, 26 desember, 2002
Meiri jól

Já, það er sko ekki ofsögum sagt að jólin séu hvít hér á Manhattan. Við vorum inni við mestallan daginn í gær, við lestur auðvitað, en þegar ég fór út seinnipartinn, til þess að sjá um frumurnar mínar, var allt á kafi í snjó! Það var ofboðslega fallegt. Sérstaklega þar sem það var almennur frídagur, og allir litlu húsvarðarkallarnir höfðu ekki mokað allan snjóinn af gangstéttunum, og það voru fáir á ferli til að traðka niður snjóinn! Þetta er víst í fyrsta skipti í um þrjátíu ár sem það eru hvít jól hér.

Það var líka geðveik snjókoma, þannig að þegar ég kom loksins á labbið var ég með maskara út um allt andlit.
Ég dreif mig að splitta frumunum, og svo fórum við Mörður niður á Times Square til þess að horfa á söngleikinn The Dance of The Vampires. Þetta er sko í síðasta skipti sem ég fer í leikhús án þess að skoða leikdóma áður, því að sýningin var vægast sagt léleg. Við höfðum ætlað á Urine Town, en allir ódýru miðarnir aftast voru búnir, þannig að við tímdum ekki alveg að borga hundrað dollara fyrir hvorn miða og fórum á vampírudansinn í staðinn. Það var eiginlega fáránlegt hvað það var ekkert gott við sýninguna, söngurinn, hljómsveitin, sviðsmyndin, búningarnir, allt saman var þetta frekar lélegt bara. Við flettum furðu lostin í gegnum leikskrána og komumst að því að ferilskrá flestra leikaranna, tónlistarhöfundanna, lekstjórans, og bara allra sem að sýningunni komu var stórglæsileg. Við héldum eiginlega að við værum svona rugluð, þangað til heim kom og við flettum upp leikdómum á Times.

En allavegana, við gerðum gott úr kvöldinu og fórum niður í Greenwich Village í leit að veitingastað og enduðum inni á alveg stórkostlega takkí dæner þar sem við borðuðum hrásalat drekkt í dressingu og barbekjú kjúkling og franskar "beint úr pakkanum". Þetta var eiginlega bara alveg stórkostlegt að vera á jólunum á svona ekta dæner, með rauðum leðursætum og þjónum í þjónabúningum. Úti snjóaði bara og snjóaði og lókal liðið úr hverfinu sat við borðin í kring og skiptist á jólagjöfum.

Posted by erna at 12:51 EH
Miðvikudagur, 25 desember, 2002
Hvít Jól

Þann tuttugasta og þriðja des var sakvæmt veðurspá 23% líkur á hvítum Jólum hér í New York. Þegar við gengum út af Goa í gær var byrjað að snjóa. Hvít Jól í fyrsta skipti síðan á sjötta áratugnum. Goa er indverskur sjávarréttastaður. Við áttum pantað borð kl. 09.30 og mættum tímanlega, staðurinn var nánast tómur þannig að maður velti því fyrir sér hvort þetta hefði verið vel valið hjá okkur. Við þurftum reyndar ekki að velta því lengi fyrir okkur því forréttirnir komu fljótlega eftir að við pöntuðum. Við fengum okkur grænmetis samósu og djúpsteiktar þunnar sneiðar af eggaldin með jógúrtsósu og grænmeti ofaná. Samósan var að sjálfsögðu góð og eggaldinsneiðarnar voru í einu orði sagt frábærar. Í aðalrétt fékk Erna sér sjóvartara (Sea bass) í sinneps karrý kókossósu. Ég smakkaði réttin og hann var hrikalega góður i algjöru jafnvægi. Ég fékk mér pönnusteiktan lax, hann var borinn fram á pönnunni og fyrstu bitarnir voru einstaklega góðir en eftir því sem leið á urðu bitarnir sem lágu á pönnunni pínu ofsteiktir. Meðlætið, laukur og grænmeti, var kanilkryddað. Pínu spes en mjög gott. Á eftir fengum við okkur kaffi, Grand Marnier og koníak. Frábær matsölustaður með góðri þjónustu.

Eftir matinn fórum við í heimsókn til Binnu sem var með lítið Jólapartí. Stoppuðum þar í smá stund og fórum svo heim og byrjuðum að opna pakkana um þrjú eða fjögur eftir miðnætti.

Posted by mordur at 03:58 EH
Þriðjudagur, 24 desember, 2002
Jólalabb

Það ómar nú íslensk útvarpsdagskrá hér á rannsóknarstofunni hjá mér. Ég er með kveikt á rás tvö í tölvunni og dilla mér við bekkinn þar sem ég er að vinna að mótefnalitun. Svei mér þá ef ég ætla ekki líka bara að komast í hátíðarskap með því að hlusta á aftansöng í Dómkirkjunni klukkan eitt, en þá eru einmitt komin jól á Íslandi, svolítið fyrr en í Ameríkunni.

Posted by erna at 11:21 FH
Mánudagur, 23 desember, 2002
Nærbrækur í jólagjöf?

Það er eitt sem ég hef aldrei skilið, en það eru karlmenn sem gefa konum sínum nærföt í jólagjöf eða afmælisgjöf. Mér datt þetta í hug þegar ég rakst á þessi skrif á MSN. Ég held að það hljóti að hafa verið karlmaður sem lét þessi skrif frá sér...

Ég yrði að minnsta kosti geðveikt móðguð ef Merði dytti í hug að gefa mér undirföt í jólagjöf. Ég veit hins vegar að honum finnst það jafnhallærislegt og mér, þannig að ég tel mig nokkuð örugga! Mér finnst það bara svo ýkt púkó, að gefa konunni sinni nærföt, svona eiginlega bara eins og að gefa sjálfum sér gjöf. En ég er bara að spá, hvað er málið? Halda karlar virkilega að konum finnist gaman að fá naríur og brjóstahöld í jólapakkann? Eða finnst þeim bara svo skemmtileg tilhugsunin að sjá elskuna sína fyrir sér í brókunum sem þeir eru að skoða að þeir standast ekki mátið?

Posted by erna at 12:53 FH
Sunnudagur, 22 desember, 2002
Jólabland

Við erum búin að gera jólabland með Goya Malt og Malta India. Við drukkum Goya Malt blönduna úr rauðvínsglösum með kvöldmatnum. Ég verð bara að segja að blandan stóðst mínar væntingar og gott betur, ótrúlega nálægt malt og appelsín blöndunni sem maður á að venjast. Rétt í þessu var ég að útbúa blöndu með Malta India og hún er ekki síðri en Goya blandan.
Það er mikill léttir að vita til þess að maður getur þambað jólaöl yfir allar hátíðirnar.

Posted by mordur at 12:12 FH
Laugardagur, 21 desember, 2002
Maltesín

Við vorum að koma úr verslunarleiðangri þar sem við keyptum malt og Fanta fyrir jólin til þess að blanda maltesín. Maltúrvalið er svo gott hérna að okkur greip mikill valkvíði, enda ekki léttvæg ákvörðun að velja jólamaltið. Til þess að missa nú örugglega ekki af besta maltinu keyptum við þrjár tegundir. Sex flöskur af indversku malti; Malta India, (0.5% vol, áfengi) Þrár flöskur af amerísku malti, framleitt fyrir suður-ameríska innflytjendur; Malta Goya (ekkert áfengi) og þýskt malt, framleitt fyrir spænskumælandi fólk búsett í BNA; Extracto de Malta (áfengismagn ekki tekið fram, en aðvörun um skaðsemi áfengis á bakhlið).

Það er því spennandi kvöld framundan, við jólakortaskrif og maltsmökkun.

Posted by erna at 08:16 EH
Letin í manni

Rassgatans! Hvað klukkan er orðin margt. Ég er búin að liggja í rúminu að reyna að sofna aftur í tvo klukkutíma, en ekkert gekk. Ég er frekar mygluð og syfjuð, en nú gengur þetta ekki lengur. Jógað bíður, ég heyri seyðandi rödd Rodney Yee kalla í mig af ströndinni... Adho Mukha Savasana.. Namaste. Ætli hann viti að hann geti líka sagt Namaskar og að það þýði það sama?

Það sem liggur svona á í dag er að fara niður í bæ og kaupa gjöfina hans Marðar, síðasti sjéns! Ég held að hann ætli að gefa mér gjöf, þannig að eitthvað verð ég að finna handa kallinum (hehehe...).

Posted by erna at 11:16 FH
Frumuþrumur

Jessöríbab. Mótefnalitunin á frumunum mínum er farin að ganga! Ég gersamlega gleymdi mér fyrir framan smásjána í kvöld, og þegar ég leit á klukkuna var hún orðin rúmlega eitt...

Kannski sýni ég ykkur frumurnar mínar á morgun! Hehe... ég ætti kannski að stofna myndaalbúm á netinu með myndum af fumunum mínum.. Bleh.. Ég held að ég sé farin yfirum af þreytu, ég vona samt að það sem ég sá í smásjánni hafi ekki verið ofskynjanir!

Posted by erna at 01:29 FH
Föstudagur, 20 desember, 2002
Prins Póló =)

Vitiði hvað! Haldið þið ekki að hún Ella, pólska tæknikonan á labbinu okkar hafi ekki komið með Prins Póló handa öllum á labbinu rétt í þessu!

Ég hafði sagt henni frá hrifningu okkar Íslendinga á þessu eðalsúkkulaði, og hún stóðst ekki mátið þegar hún kom við í pólsku búðinni í dag. Ég ætla því að skjótast upp í sjálfsala og kaupa kókakóla. Í dag er því dagur kók og prins!

Posted by erna at 12:46 EH
Hiti..

Það góða við daginn í dag er að það er funhiti, þrettán gráður á selsíus og ljúft bara =) Ég verð náttúrulega að vinna fram á kvöld, en að minnsta kosti get ég sleppt úlpunni á leiðinni á labbið. Ljúft.

Og nú þýðir ekki annað en að ráðast í tilraunamennskuna á fúll spíd.

Posted by erna at 10:34 FH
Fimmtudagur, 19 desember, 2002
Urrr..

... Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera vesall doktorsnemi. Ég hitti Carol loksins í dag, viku á eftir áætlun. Og loksins kom hún því út úr sér hvað hún vildi að ég gerði, rétt fyrir jól og gaf mér tvær vikur til þess að klára tilraunirnar sem hún stakk upp á. Þannig að það er eiginlega bara bæ, bæ, jól hjá mér, því ég verð sennilega að vinna myrkranna á milli til þess að ná að gera þetta á tilskyldum tíma. Hún hefði sko alveg getað aulað þessu út úr sér við mig í september, en hún gaf sér aldrei tíma til þess að skoða hvað ég var að gera. Kerlingarálft. Og svo til þess að bæta gráu ofaná svart fór hún að skoða dagsetningarnar í bókinni minni og spurði mig hvað ég hafði eiginlega verið að gera í nóvember... Hún gaf það sterklega í skyn að hún héldi að ég hefði ekki verið að vinna neitt þann tíma... URRRR. Það var eiginlega það sem pirraði mig mest, ég set það ekki fyrir mig að vinna hörðum höndum að afla þeirra gagna sem ég þarf næstu vikurnar, eða að tilraunirnar mínar séu gagnrýndar, því á því læri ég mest. Hins vegar varð ég nett prirruð að hafa unnið til tíu flest kvöld og mætt allar helgar á labbið í nóvember og hún heldur barasta að ég sitji á rassinum og geri ekki neitt. En svona er það, þetta er hennar vandamál, ég get ekki að því gert að hún hafi ekki tíma til að fylgjast betur með. Hún kemst sko að því á endanum að ég er ekki komin hingað til þess að sitja á rassinum og gera ekki neitt..

Posted by erna at 10:13 EH
Hríngadróttinssaga

Ég var ekki neitt smá sein í dag þegar ég var að drífa mig úr vinnunni til þess að fara með Merði, Josh, Melissu og fleirum að sjá Hringadróttinssögu í bíó í kvöld. Ég var svo seinheppin að öll smásjárglerin sprungu í höndunum á mér þegar ég var að sótthreinsa þau við gasloga, þannig að ég var klukkutíma lengur að því en ég er venjulega. Ég var því ekki komin heim fyrr en rétt rúmlega sjö og aðeins klukkutími í að myndin byrjaði. Málið var að bíóið var lengst úti í Queens og allir komnir á staðinn nema ég.

Ég hringdi í Josh og spurði hann hvort ég næði þessu, hann sagði að það væri ekkert mál, það tæki rúman hálftíma í söbbanum, en ég yrði að drífa mig. Ég rauk því út í hendingskasti út á söbbveistopp og rétt náði eittunni niðureftir. Ég þurfti svo að skipta yfir í R-lestina á Times Square, en það fór ekki betur en svo að ég rétt sá í rassinn á henni þegar ég kom á brautarpallinn. Næsta lest lét heldur betur bíða eftir sér og var svo ekkert smá lengi á leiðinni úteftir.. Og grey Mörður beið fyrir utan bíóið með miðann minn þegar ég kom. Tímasetningin hefði þó ekki getað verið betri, því við löbbuðum inn í salinn akkúrat þegar myndin var að byrja.

Ég var þokkalega ánægð með myndina. Viggo Mortensen (sem leikur Aragon) átti ekki lítinn þátt í því =) En myndin er mikið hraðari en númer eitt, eiginlega bardagar út í gegn. Gollum átti líka stórkostlegan leiksigur, hann gersamlega átti myndina (sko, á annan hátt en Viggó), það er erfitt að ímynda sér að hann sé bara ein stór tæknibrella út í gegn! Þessir þrír tímar liðu mjög hratt, meira að segja á fastandi maga, ég bara eiginlega trúði því ekki að myndin væri búin þegar ljósin voru kveikt og hlakka mikið til að sjá þá næstu.

Við skröltum svo heim í söbbvei ásamt Josh og Melissu og fengum okkur pizzu á Koronett í leiðinni heim, svona sem desert eftir poppkornið sem við fengum í kvöldmat. Við fjárfestum líka í Time Out og erum farin að velta fyrir okkur hvað við eigum að gera á aðfangadagskvöld. Mig langar mest til þess að sjá Broadway uppfærslu af "A Christmas Carol" (hvað heitir sagan aftur á Íslensku?) eftir Dickens, eftir ljúffenga máltíð einhvers staðar niður í bæ... Ég held að ég fái að ráða, þrátt fyrir að betri helmingurinn sé ekki mikið fyrir söngleiki. En sjáum samt til...

Posted by erna at 01:34 FH
Miðvikudagur, 18 desember, 2002
La Bohéme

Vá, ég er agndofa. Ég var að koma af Broadwaysýningunni La Bohéme. Þetta er uppfærsla Baz Luhrmann (þess sem leikstýrði Moulin Rouge) á hinni margfrægu óperu Puccinis.

Ég bjóst einhvern veginn við því að Luhrmann hefði poppað óperunna algerlega upp og gert úr henni söngleik. Það kom því þægilega á óvart að óperan var sungin alveg í gegn og látin halda sér, en það var einungis umgjörðin sem var breytt. Hún var látin gerast árið 1957 í stað miðbik nítjándu aldar, en staðsetningin var enn sú sama, listamannahverfi Parísar. Ástarsagan er náttúrulega líka klassísk...

Tónlistin heillaði mig alveg upp úr skónum og sviðsmyndin var stórkostleg, hreinlega ólýsanleg, svona teiknuð eftir gömlum ljósmyndum af París, alveg svakalega mikil nostalgía í gangi.

Það var líka frekar fyndið að óperan var textuð frekar frjálslega, þannig að það var alls konar slangur og fyndnir frasar í gangi =).
Salurinn var líka góður, fólk tók andkafir og veltist um af hlátri og skældi til skiptis. Við fengum líka fín sæti, við vorum fremst í miðlungsdýru sætunum, en fólkið beint fyrir framan okkur borgaði þrisvar sinnum meira en við fyrir miðana sína. Ég sat líka nær alveg fyrir miðju.

Ég mæli með þessari sýningu fyrir alla þá sem eru á leiðinni til New York á næstunni. Fyrir hina sem koma kannski síðar, þá er hér smá sýnishorn. Ég er nú þegar búin að setja upp La Bohéme skrínseverinn á tölvuna mína!

Posted by erna at 12:17 FH
Þriðjudagur, 17 desember, 2002
Jóla hvað?

Við fengum meiri jólaglaðning með póstinum í gær, en jólapakkarnir frá pabba og Co. komu í gær, ásamt meiri jólatónlist og meira jólanammi! Við verðum orðin alveg spikfeit eftir áramótin, en við verðum sko örugglega ekki í vandræðum með að koma öllu þessu nammi í svanginn á okkur.

Fyrsta jólakortið kom líka, en það var frá Jónu og Stebba og Soffíu í Lundi í Sverige. Hún Soffía verður sko líkari mömmu sinni með hverju árinu, algert krútt!

Nú er ég annars bara á labbinu að einangra prótín, aldrei þessu vant, en það lítur út fyrir að hreinsunin á nýja prótíninu mínu hafi tekist í fyrstu tilraun. Jibbí kóla! Þess vegna stefnir allt í skemmtilegar tilraunir næstu daga. Veiiiijjjj.... það er svo ógisslega gaman að gera tilraunir. Mér finnst eiginlega skemmtilegast að gera FACS analysu, en hún er gerð með svona tæki sem telur frumur og segir manni hvar í frumuhringnum þær eru staddar. Það er reyndar hægt líka að gera alls konar skemmtilega hluti með tækinu, en í bili er ég að nota það í frumuhringsgreiningu. Þannig að nú mega allir að senda mér sterka strauma frá fimmtudegi fram á sunnudag =)

Posted by erna at 02:45 EH
Sunnudagur, 15 desember, 2002
Verkfall

Verkfallsdraugurinn svífur yfir borginni í kvöld. Á miðnætti hefst verkfall starfsmanna MTA. Ef af því verður falla niður allar almenningssamgöngur í borginni og þá verður ekki kátt í höllinni. Sérstaklega þar sem við eigum miða á frumsýningur The Two Towers í vikunni. Vandamálið er að kvikmyndahúsið sem við eigum miða á er í Queens og það tekur alla vega þrjá tíma að ganga þangað. Ég verð fúll ef ég missi af frumsýningunni. Mjög fúll. Annars held ég að verkfall ef að því verður komi til með að hafa áhrif á fleiri en mig, borgin kemur bara til með að lamast held ég. Þar að auki er spáð snjókomu á morgunn. HeHe, ég er spenntur.

Posted by mordur at 08:18 EH
Dim Sum GO-GO

Við fórum í Dim sum í dag á Dim Sum GO GO. Það er alltaf skemmtilegt að borða þessa einkennilegu litlu rétti sem boðið er upp á. Það er ill mögulegt að átta sig á því hvað er í þeim og hvernig þeir eru gerðir en maður lætur sig bara hafa það og skúffar þessu í sig. Flestir réttirnir eru góðir en inn á milli leynast vondir og slímugir réttir sem ekkert skemmtilegt er að láta upp í sig. Þó verð ég að segja að réttir sem mér fundust bragðvondir og slímugir fyrtst þegar ég prófaði Dim Sum eru finnast mér í dag góðir. Þetta lærist sem sagt.

Posted by mordur at 08:10 EH
Laugardagur, 14 desember, 2002
Jógíní

Ég hef alveg gleymt að blogga um að þessa dagana er ég orðin að "yogini" eins og það heitir upp á ensku. Ég er sumsagt farin að stunda jóga á fullu fyrir framan sjónvarpið á morgnana. Ég er sko ekki frá því að það sé að lappa upp á bakið á mér, að minnsta kosti er þetta annar dagurinn í röð þar sem ég finn ekki fyrir stöðugum bakverk =)

Ég keypti nefnilega tvo DVD og eina vídejóspólu á Amazon, með svona jógaæfingum fyrir bakið á manni og svo var annar diskurinn jóga fyrir byrjendur. Þetta er svaka gott svona á morgnana til þess að koma blóðrásinni af stað og teygja úr hryggnum og láta braka aðeins í honum. Verst að ég er búin að vera kvefuð og andstutt og með hor (ekki slef samt), þannig að ég hef ekki alveg getað andað eins og maður á að gera...

Gaurinn sem gerir jógað á diskunum er samt frekar fyndinn. Hann er með svart sítt hár í fléttu og talar svo rólega að það er eins og hann sé að reyna að svæfa mann. Það er eins og það sé skylda hjá jógakennurum að draga seiminn, því kellingin á byrjendadiskinum gerir það líka. Og svo reglulega leggur hann Rodney Yee hendurnar saman fyrir framan sig og segir "Namaste" á mjög tilgerðarlegan hátt, alls ekki eins og Indverjar segja það alla vegana. Mér finnst þetta alveg bráðfyndið, og Mörður hefur gert óspart grín að þessu. Það er líka svo fyndið að vídejóið er tekið upp niðri á strönd á einhverri eyju í Karabíska hafinu. Úff, það væri nú gaman að vera þar!

Þessa dagana ætti sumsagt ekki að koma neinum á óvart að sjá mig í þessari stellingu, eða þá jafnvel þessari hérna.

Annars er ég alveg himinlifandi yfir því að þetta sé að virka, sama þó "sumir" segi að þetta séu bara svona "placebo" effect. Veitir svosem ekki af að fá eitthvað sem virkar núna af því að ég er hætt í sjúkraþjálfun. Guði sé lof fyrir einkavætt heilbrigðiskerfi maður! Tryggingafélagið hætti að borga af því að mér var ekki að batna, hafið þið heyrt annað eins!

Posted by erna at 05:49 EH
Letikvöld

Nú held ég að Herdís vinkona sé endanlega farin á hausinn. Hún hringdi í mig frá Íslandi í gær og við spjölluðum saman í tvo klukkutíma! Það var ekkert smá gaman að spjalla við hana, um heima og geima að vanda =)

Við héldum okkur annars bara heima í gærkvöldi, svona bara kósí í faðmi fjölskyldunnar. Reyndar kom upp deilumál, Mörður var ekki mjög hress með að hlusta á Jólahjól alveg í botni, en það var það sem mig langaði að gera. Hann hefur sumsagt ekki gaman að jólalögum =)Þannig að ég hlusta bara á þau í heddfónum í staðinn.

Lagið "Hann verður hjá mér um jólin" er ekki einungis jólalag gærdagsins, heldur lag þessara jóla -í mínum huga alla vegana. Þið skiljið kannski af hverju!

Posted by erna at 01:31 EH
Föstudagur, 13 desember, 2002
Hann verður hjá mér um jólin....

... er jólalag dagsins í dag í boði Ms. Möller.

Mamma og co. sendu sko líka tvo diska pakkfulla af jólalögum. Ég er búin að hlusta á Jólahjól fjórum sinnum í dag (og klukkan er ekki orðin ellefu). Það lag kemur mér alltaf í alveg svaka jólaskap, það minnir mig alltaf á jólaundirbúninginn í Skjöldólfsstaðaskóla... sennilega af því að lagið kom út á þeim tíma.

Mjamm, en nú þarf ég að drífa mig á labbið eftir kalda morgunsturtu og sangan hafragraut, en hvað er það svosem á milli vina þegar maður hefur alla þessa jólatónlist til að ylja sér við?

Posted by erna at 10:54 FH
Fimmtudagur, 12 desember, 2002
Jólaundirbúningur?

Jæja, loksins kominn tími til að blogga. Ég er búin að vera frekar önnum kafin undan farið, á labbinu, en samt kannski frekar félagslega, Arts and Crafts annað hvert kvöld, (trefillin gengur nú samt hægt) og svo fórum við Vasoo og Adelene út að borða með Noeliu, áður en hún fer heim til Argentínu í jólafrí.
Við fórum á Max SoHa að borða og ég fékk líka þennan fína baccalao. Það er svo gaman að hitta hana Noeliu, en það gerist of sjaldan þar sem labbið hennar er "uptown".

Svo er líka allt farið að rúlla á labbinu, ég ákvað að segja skilið við prótínhreinsanir í bili og fara að gera tilraunir og niðurstöðurnar komu mér skemmtilega á óvart. En til þess að kontrólera niðurstöðurnar verð ég að hreinsa kontrólprótínið sem ég var að klóna í síðustu viku.

Annars er það í fréttum að við fengum fyrstu jólapakkana í dag =), senda með hraðpósti beint úr Hafnarfirðinum. Það verður pínu erfitt að standast freistinguna að opna þá fram að jólum! Og svo fengum við fullt, fullt af nammi, alíslensku. Takk mamma!!!

Ég var líka að fatta að það er hægt að kaupa malt hérna, en það er víst mjög vinsæll drykkur hjá Dóminíkönum, en þeir búa ófáir hér í Harlem. Jólin virðast því alveg vera að reddast, með maltesín og öllu!

Posted by erna at 07:31 EH
Þriðjudagur, 10 desember, 2002
Meiri Jólaglögg

Jólaglögg uppskriftir. Uppskriftin sem Siggi notaði á sunnudaginn er þarna líka, Arnes' Julegløgg

Posted by mordur at 03:51 EH
Mánudagur, 9 desember, 2002
glöggglöggglögg

Við fórum í jólaglögg til Sigga í gær. Jólagjögg er bara góð, ég hef sjaldan smakkað hana sérstaklega eru gegnsoðnar rúsínurnar góðar á botningum. Ég hefði getað borðað þær allt kvöldið. Svo kom einhver með íslenskan lakkrís (Krummalakkrís) og ég var ánægður með það þangað til ég ætlaði að fá mér. Pokinn var tómur fyrir utan einn mola sem enginn hafði þorað að taka. Ef ég segi eins og er þá var það ÉG sem kláraði pokann.

Posted by mordur at 01:46 EH
Sunnudagur, 8 desember, 2002
Namminamm..

Gæsin hjá Josh og Melissu í gærkvöldi var ekkert smá fín. En meðlætið gerði útslagið, það var hreint út sagt æði. Mig á eftir að dreyma piparmyntur summer-squash næstu nætur, það er ég viss um, eða yam-kartöflustöppu, eða soðið rauðkál í rauðvínslegi. Úff..

Mér finnst maturinn sem fólk eldar sér til hátíðarbrigða hér í Ameríkunni alveg hreint frábær. Það er alltaf svo mikið af svona hefðbundnu fersku grænmetismeðlæti, sem er kannski ekki til í hefðinni heima því það var nú lítið um garðinn að gresja á Íslandi í grænmetis og ávaxtamálum fyrir ekki svo mörgum árum síðan.

Á eftir erum við svo að fara í jólaglögg hjá honum Sigga vini okkar. Ég hlakka svaka til, það er svo gaman að koma til hans, og svo að hitta allt íslenska liðið náttúrulega.

En fyrst þarf ég að klára að mótefnalita frumurnar mínar.

Posted by erna at 03:20 EH
Laugardagur, 7 desember, 2002
Jólajólajólajóla...

Við vorum ekkert smá góð í dag. Við fórum og keyptum næstumþví allar jólagjafirnar á einum eftirmiðdegi! Við höfum aldrei verið svona rosalega effektíf í þessu. Það eru bara tvær gjafir sem á eftir að redda, en það verður ekkert mál.

Ég vona hins vegar að við séum ekki orðin of sein að senda pakkana heim, því að það tekur svo svakalegan tíma víst að koma svona sendingum til Íslands. En það kemur víst bara í ljós. Nú á ég bara eftir að skrifa jólakortin, en Mörður þvertekur fyrir það, hann er alveg á því að það sé heimskulegur siður að senda jólakort. Ég verð því víst að skrifa þau í svefni, því framundan eru stress vikur fyrir labbfundinn minn, og svo á ég að hitta Carol á fundi á föstudaginn og þarf að búa mig vel undir það og helst að ná að gera nokkrar tilraunir áður. Púff... Ætli fólk fái ekki bara áramótakort frá okkur í ár!

Annars þá var stappað alls staðar niðri í bæ í dag, hvert sem við fórum. Það var ekki þverfótað fyrir fóki á Canal street og svo vorum við svo vitlaus að fara í Macy's en það var ekkert annað en bardagi í fólksþvögunni, alger dýragarður. Þvílík mannmergð. En við tókum þetta með trompi og allt blessaðist þetta nú.

Ég dreif mig svo á labbið að splitta frumum og í sund. Svo erum við boðin í mat í kvöld hjá Josh og Melissu, matarlyktin er orðin ansi freistandi svo að ég ætla að drífa mig upp. =)

Posted by erna at 08:48 EH
Föstudagur, 6 desember, 2002
Gripin!

Ég var að koma aftur á labbið eftir æfingu. Þar sem ég var glorsoltinn seildist ég eftir súkkulaðisaltstöngum (já ég var svöng) sem lágu ofaná ískápnum við hliðina á skrifborðinu mínu. En í stað þess að grípa í snakk, hreyfðist eitthvað inni í pokanum! Mér dauðbrá og ég hrópaði eitthvað út í loftið í sjokkinu. Inni í pokanum var pínu lítil mús. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera og stóð frosin í nokkrar mínútur og hafði ekki augun af snakkpokanum. Loksins seildist ég varlega eftir tómum poka sem lá á gólfinu og skóflaði snakkpokanum varlega ofaní hann og lokaði.

Ég fór þvínæst fram á labb og spurði Kristy og Masha ráða hvað ég ætti að gera við litla greyið. Ég hafði ekki alveg brjóst í mér til að drepa mýslu eða kasta henni út í kuldann. Þær tóku upp á því að setja hana í risa, risa, risa glerkrukku sem þær eiga og rifu niður handþurrkur í krukkuna og settu músamat og vatn ofaní krukkuna. Nú kom sér vel að vera á líffræðilabbi, því þar er allaf stutt í músamatinn!

Við erum þó ekki vissar um að við fáum að halda mýslu, það fer allt eftir því hvað henni Ellu finnst, en hún er pólska konan sem ræður flestu á labbinu.

Posted by erna at 08:17 EH
Fimmtudagur, 5 desember, 2002
Snowstorm

Það er allt búið að vera á hvolfi hér í borginni í dag vegna snjókomu. Ég verð nú líka að segja að það snjóaði bara slatta, það hefur snjóað án hléa núna frá því í morgunn og því er allt orðið hvítt.

Þegar ég fór á labbið í morgun var fólk út um allt að henda snjóboltum hvert í annað, en flestir hröðuðu sér þó af mesta mætti í gegnum "bylinn" til þess að komast inn í hlýjuna. Ég brosti bara út í annað og renndi mér fótskriðu og lét snjóa á tunguna á mér.

Vasoo vinkona var alveg himinlifandi, en þetta er í fyrsta skipti sem hún sér alvöru snjókomu, en eins og áður hefur komið fram er hún Indveji. Hún var ekkert smá svekkt í fyrra að það skyldi ekki hafa snjóað meira. Ég spurði hana hvort að hún hafi notað tækifærið og hnoðað snjóbolta og rennt sér fótskriðu, en nei. Hún sagði mér feimin að henni myndi finnast hún líta kjánalega út ef hún gerði það. Spáið í því, hún hefur aldrei hnoðað snjóbolta!

Annars eru allri búnir að vera að býsnast yfir veðrinu í dag, hrylla sig og hrista. Ein vinkona mín ætlaði meðal annars ekki að koma með okkur á barinn í dag af því að hún nennti ekki að labba svona langt í þessu veðri. Svona langt eru tíu blokkir, eða sirka tíu mínútna labb! Og það er ekki eins og það sé vindur eða eitthvað=) En þetta er náttúrulega normalt fyrir svona borgarkrakka sem hafa ekki vanist veðráttu eins og við heima á Fróni.

Við erum sumsagt á leiðinni á "GSAC grad student mixer" á bar sem heitir SoHa (Stytting fyrir South of Harlem, sbr. SoHo). Þar náum við vonandi að skvettta í okkur nokkrum köldum, en fyrst ætlum við að fá okkur pizzu á VandT. Stefnir allt saman í alveg hreint ágætis kvöldstund!

Posted by erna at 07:11 EH
Snjór!

Á dauða mínum átti ég frekar von en snjókomu! Júúúúhúúú!

Ég elska snjó. Kaninn er náttúrulega í algeru áfalli yfir þessu. Skræfur! Ég var að heyra að á aðfaranótt þriðjudagsins mældist lægsti hiti hér í borginni í tvö ár. Og það gengu allir um skjálfandi kvartandi yfir kulda. Það var fjögurra stiga frost yfir daginn. Það var pínu kalt, ég viðurkenni það. Miklu kaldara en í íslenskum mínus fjórum. Það gerir rakinn sko. En hey, það kemur svona veður hér í einn dag og svo er aftur orðið aðeins hlýrra.

Ég fékk náttúrulega ekki að heyra neitt annað en íslendingabrandara og komment á þriðjudaginn. Nicole spurði mig: "Well, Erna, is it cold enough for you outside now?" Ég glotti bara og svaraði: "Yes, I must admit it is quite refreshing out today."

Ég meina verður maður ekki að halda kúlinu sem Íslendingurinn á svæðinu?

Posted by erna at 09:12 FH
Miðvikudagur, 4 desember, 2002
Dýrasögur

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér á labbinu í vikunni vegna þess hvað síðasta vika var afslöppuð, með þeinksgivíng og öðru slæpi.

Ég fór meðal annars síðust heim af labbinu í gær og varð þeim heiðri aðnjótandi að heilsa upp á labbmeðliminn sem fer á stjá á nóttunni þegar róast og dimmir. Þetta var engin önnur en labbmýslan okkar, en ég hef bara heyrt um hana rætt hingað til og var ekki viss um að hún væri í alvörunni til.

Það er nefnilega ekkert svo fágætt að það séu mýs skoppandi um líffræðilöbb svona yfirleitt, því að það eru alltaf viðutan líffræðingar til staðar sem gleyma að loka mýsnar sínar inni, eða þá missa þær úr greipunum fyrir aflífun.

Ég heyrði hins vegar skemmtilega sögu af stelpu sem byrjaði ári á undan mér í náminu, en er hér ekki lengur. Hún var að vinna á labbi "uptown", en það labb vinnur við rannsóknir á Xenopus laevis, sem kallast froskar á íslensku. Labbið er þar að auki í sömu byggingu og eitt sjúkrahús Kólumbíuháskóla. Vinkonan náði einu sinni að missa froskabúr úr höndunum á miðri fæðingardeildinni, og út sluppu nokkur stykki Xenopus froskar stökkvandi og kvakandi, frelsinu fegnir. Hvað daman var að gera með froskana sína á fæðingardeildinni fylgdi ekki sögunni, en ég endurtek, þessi kona er ekki lengur í þessum skóla.

Posted by erna at 06:39 EH
Mánudagur, 2 desember, 2002
Trakkbakk!!!

Júhúúúú...
Trakkbakkið mitt virkar. Ég hélt alltaf að það væri eitthvað bilað og hef aldrei nennt að gera neitt í því, en nú sé ég að það er komið trakkbakk á færsluna hérna að neðan frá honum Tómasi í (heita) pottinum.

Nú finnst mér sko að fólk ætti að fara að hætta að nota blogger (sem ég linka ekki einu sinni á fyrir lélegheit), og nota múvabúl tæp í staðinn. Þá getum við öll pingað hvort annað þegar við linkum í færslur og þá verður bloggumræðan sko enn líflegri en áður!

Posted by erna at 10:18 EH
Sybbin...

Nú er ég sybbin stelpa. Ég sofnaði nefnilega seint í gærkveldi og vaknaði klukkan fjögur til þess að pína frumurnar mínar. Ég er nefnilega að gera tilraun sem þarfnast meðhöndlunar á frumunum reglulega í þrjá sólarhringa.

Það kom mér mest á óvart að það var slatti af fólki á ferli á campusnum í nótt, og flestir virtust vera að koma út úr sömu byggingunni. Það var alveg nístingskuldi, ég var vel klædd, í dúnúlpu með húfu og allt, en var samt heillengi að ná í mig hita þegar ég skreið aftur upp í rúm. Það er eriftt að ímynda sér að ég hafi gengið sömu leið fyrir bara tveimur mánuðum síðan og verið alveg að kafna úr hita. Það er eitt af því sem ég fíla svo við þessa borg, það er svo stutt öfganna á milli, sama á hvaða vettvangi.

Þessi morgunganga mín kom mér líka í smá skammdegisfílíng, því að ég hef ekki vaknað í myrkri síðan ég var heima á Íslandi síðustu jól. Það birtir nefnilega alltaf fyrir klukkan sjö hér í kvöld.

Það er ekki laust við að ég sakni skammdegisins pínu lítið, það er svo kósí alltaf hreint.

Posted by erna at 10:05 EH
Sunnudagur, 1 desember, 2002
Hæ, hæ ég hlakka til...

Mikið væri ég til í að eiga íslensk jólalög núna! Það vantar sko algerlega smá jólahjól í tilveruna núna til þess að toppa jólatilhlökkunina. Ég elska jólalög, en á engin svona alvöru íslensk sem tilheyra svo í jólaundirbúningnum (sem reyndar verður mjög lítill á þessu heimili).

Við erum að spá í hvað við ætlum að gera á aðfangadagskvöld, því að það er sko langt frá því að það sé allt lokað hér þá. Ætli við förum ekki út að borða og svo í leikhús eða söngleik eða eitthvað þannig. Það væri alveg frábært. Rómó, rjómó jól í New York.

Við gætum náttúrulega tekið allan pakkann og byrjað á því að fara á skauta í Central Park =)

Posted by erna at 08:40 EH