Laugardagur, 28 desember, 2002
Indira

Hann Mörður gaf mér svo frábæra bók í jólagjöf. Ég er eiginlega á því að hann sé farinn að þekkja mig betur en ég geri sjálf! Hann rakst á þessa bók í glugganum á NYPL (New York Public Library) hérna í vetur og elti hana uppi handa mér, en hún var víst uppseld um mestalla borg!

Þetta er bókin Indira, eftir hana Katherine Frank, og er ævisaga Indiru Gandhi. Ég er búin að vera gersamlega límd yfir bókinni undanfarið, get til dæmis ekki lagt hana frá mér til að fara að sofa á kvöldin. Bókin er bæði mjög vel skrifuð og fjallar náttúrulega um efni sem mér er mjög hugleikið.

Það rifjaðist meðal annars upp fyrir mér að fyrsta fréttin sem ég man eftir að hafa horft á sem krakki og velt fyrir mér var bálför Indiru Gandhi 1984 þegar ég var átta ára. Ég man eftir að ég sat í stofunni á Silfurbrautinni á Höfn í Hornafirði og mamma útskýrði fyrir mér að það væri verið að brenna merka konu og að þetta væru jarðarfarasiðir í hennar landi. Síðan þá hefur Indland jafnan vakið hjá mér forvitni, og ekki minnkaði hún í trúarbragðafræðslunni sem ég fékk þegar ég var þrettán ára. Ég heillaðist gersamlega að Mohandas Gandhi, en hann hefur stórt hlutverk í ævisögu Indiru.

Það að bók valdi manni svefnskorti hýtur ávallt að vera góður dómur um hana!

Posted by erna at 11:46 FH