Þann tuttugasta og þriðja des var sakvæmt veðurspá 23% líkur á hvítum Jólum hér í New York. Þegar við gengum út af Goa í gær var byrjað að snjóa. Hvít Jól í fyrsta skipti síðan á sjötta áratugnum. Goa er indverskur sjávarréttastaður. Við áttum pantað borð kl. 09.30 og mættum tímanlega, staðurinn var nánast tómur þannig að maður velti því fyrir sér hvort þetta hefði verið vel valið hjá okkur. Við þurftum reyndar ekki að velta því lengi fyrir okkur því forréttirnir komu fljótlega eftir að við pöntuðum. Við fengum okkur grænmetis samósu og djúpsteiktar þunnar sneiðar af eggaldin með jógúrtsósu og grænmeti ofaná. Samósan var að sjálfsögðu góð og eggaldinsneiðarnar voru í einu orði sagt frábærar. Í aðalrétt fékk Erna sér sjóvartara (Sea bass) í sinneps karrý kókossósu. Ég smakkaði réttin og hann var hrikalega góður i algjöru jafnvægi. Ég fékk mér pönnusteiktan lax, hann var borinn fram á pönnunni og fyrstu bitarnir voru einstaklega góðir en eftir því sem leið á urðu bitarnir sem lágu á pönnunni pínu ofsteiktir. Meðlætið, laukur og grænmeti, var kanilkryddað. Pínu spes en mjög gott. Á eftir fengum við okkur kaffi, Grand Marnier og koníak. Frábær matsölustaður með góðri þjónustu.
Eftir matinn fórum við í heimsókn til Binnu sem var með lítið Jólapartí. Stoppuðum þar í smá stund og fórum svo heim og byrjuðum að opna pakkana um þrjú eða fjögur eftir miðnætti.