Það er eitt sem ég hef aldrei skilið, en það eru karlmenn sem gefa konum sínum nærföt í jólagjöf eða afmælisgjöf. Mér datt þetta í hug þegar ég rakst á þessi skrif á MSN. Ég held að það hljóti að hafa verið karlmaður sem lét þessi skrif frá sér...
Ég yrði að minnsta kosti geðveikt móðguð ef Merði dytti í hug að gefa mér undirföt í jólagjöf. Ég veit hins vegar að honum finnst það jafnhallærislegt og mér, þannig að ég tel mig nokkuð örugga! Mér finnst það bara svo ýkt púkó, að gefa konunni sinni nærföt, svona eiginlega bara eins og að gefa sjálfum sér gjöf. En ég er bara að spá, hvað er málið? Halda karlar virkilega að konum finnist gaman að fá naríur og brjóstahöld í jólapakkann? Eða finnst þeim bara svo skemmtileg tilhugsunin að sjá elskuna sína fyrir sér í brókunum sem þeir eru að skoða að þeir standast ekki mátið?