... Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera vesall doktorsnemi. Ég hitti Carol loksins í dag, viku á eftir áætlun. Og loksins kom hún því út úr sér hvað hún vildi að ég gerði, rétt fyrir jól og gaf mér tvær vikur til þess að klára tilraunirnar sem hún stakk upp á. Þannig að það er eiginlega bara bæ, bæ, jól hjá mér, því ég verð sennilega að vinna myrkranna á milli til þess að ná að gera þetta á tilskyldum tíma. Hún hefði sko alveg getað aulað þessu út úr sér við mig í september, en hún gaf sér aldrei tíma til þess að skoða hvað ég var að gera. Kerlingarálft. Og svo til þess að bæta gráu ofaná svart fór hún að skoða dagsetningarnar í bókinni minni og spurði mig hvað ég hafði eiginlega verið að gera í nóvember... Hún gaf það sterklega í skyn að hún héldi að ég hefði ekki verið að vinna neitt þann tíma... URRRR. Það var eiginlega það sem pirraði mig mest, ég set það ekki fyrir mig að vinna hörðum höndum að afla þeirra gagna sem ég þarf næstu vikurnar, eða að tilraunirnar mínar séu gagnrýndar, því á því læri ég mest. Hins vegar varð ég nett prirruð að hafa unnið til tíu flest kvöld og mætt allar helgar á labbið í nóvember og hún heldur barasta að ég sitji á rassinum og geri ekki neitt. En svona er það, þetta er hennar vandamál, ég get ekki að því gert að hún hafi ekki tíma til að fylgjast betur með. Hún kemst sko að því á endanum að ég er ekki komin hingað til þess að sitja á rassinum og gera ekki neitt..
Ég var ekki neitt smá sein í dag þegar ég var að drífa mig úr vinnunni til þess að fara með Merði, Josh, Melissu og fleirum að sjá Hringadróttinssögu í bíó í kvöld. Ég var svo seinheppin að öll smásjárglerin sprungu í höndunum á mér þegar ég var að sótthreinsa þau við gasloga, þannig að ég var klukkutíma lengur að því en ég er venjulega. Ég var því ekki komin heim fyrr en rétt rúmlega sjö og aðeins klukkutími í að myndin byrjaði. Málið var að bíóið var lengst úti í Queens og allir komnir á staðinn nema ég.
Ég hringdi í Josh og spurði hann hvort ég næði þessu, hann sagði að það væri ekkert mál, það tæki rúman hálftíma í söbbanum, en ég yrði að drífa mig. Ég rauk því út í hendingskasti út á söbbveistopp og rétt náði eittunni niðureftir. Ég þurfti svo að skipta yfir í R-lestina á Times Square, en það fór ekki betur en svo að ég rétt sá í rassinn á henni þegar ég kom á brautarpallinn. Næsta lest lét heldur betur bíða eftir sér og var svo ekkert smá lengi á leiðinni úteftir.. Og grey Mörður beið fyrir utan bíóið með miðann minn þegar ég kom. Tímasetningin hefði þó ekki getað verið betri, því við löbbuðum inn í salinn akkúrat þegar myndin var að byrja.
Ég var þokkalega ánægð með myndina. Viggo Mortensen (sem leikur Aragon) átti ekki lítinn þátt í því =) En myndin er mikið hraðari en númer eitt, eiginlega bardagar út í gegn. Gollum átti líka stórkostlegan leiksigur, hann gersamlega átti myndina (sko, á annan hátt en Viggó), það er erfitt að ímynda sér að hann sé bara ein stór tæknibrella út í gegn! Þessir þrír tímar liðu mjög hratt, meira að segja á fastandi maga, ég bara eiginlega trúði því ekki að myndin væri búin þegar ljósin voru kveikt og hlakka mikið til að sjá þá næstu.
Við skröltum svo heim í söbbvei ásamt Josh og Melissu og fengum okkur pizzu á Koronett í leiðinni heim, svona sem desert eftir poppkornið sem við fengum í kvöldmat. Við fjárfestum líka í Time Out og erum farin að velta fyrir okkur hvað við eigum að gera á aðfangadagskvöld. Mig langar mest til þess að sjá Broadway uppfærslu af "A Christmas Carol" (hvað heitir sagan aftur á Íslensku?) eftir Dickens, eftir ljúffenga máltíð einhvers staðar niður í bæ... Ég held að ég fái að ráða, þrátt fyrir að betri helmingurinn sé ekki mikið fyrir söngleiki. En sjáum samt til...