Miðvikudagur, 18 desember, 2002
La Bohéme

Vá, ég er agndofa. Ég var að koma af Broadwaysýningunni La Bohéme. Þetta er uppfærsla Baz Luhrmann (þess sem leikstýrði Moulin Rouge) á hinni margfrægu óperu Puccinis.

Ég bjóst einhvern veginn við því að Luhrmann hefði poppað óperunna algerlega upp og gert úr henni söngleik. Það kom því þægilega á óvart að óperan var sungin alveg í gegn og látin halda sér, en það var einungis umgjörðin sem var breytt. Hún var látin gerast árið 1957 í stað miðbik nítjándu aldar, en staðsetningin var enn sú sama, listamannahverfi Parísar. Ástarsagan er náttúrulega líka klassísk...

Tónlistin heillaði mig alveg upp úr skónum og sviðsmyndin var stórkostleg, hreinlega ólýsanleg, svona teiknuð eftir gömlum ljósmyndum af París, alveg svakalega mikil nostalgía í gangi.

Það var líka frekar fyndið að óperan var textuð frekar frjálslega, þannig að það var alls konar slangur og fyndnir frasar í gangi =).
Salurinn var líka góður, fólk tók andkafir og veltist um af hlátri og skældi til skiptis. Við fengum líka fín sæti, við vorum fremst í miðlungsdýru sætunum, en fólkið beint fyrir framan okkur borgaði þrisvar sinnum meira en við fyrir miðana sína. Ég sat líka nær alveg fyrir miðju.

Ég mæli með þessari sýningu fyrir alla þá sem eru á leiðinni til New York á næstunni. Fyrir hina sem koma kannski síðar, þá er hér smá sýnishorn. Ég er nú þegar búin að setja upp La Bohéme skrínseverinn á tölvuna mína!

Posted by erna at 12:17 FH