Ég hef alveg gleymt að blogga um að þessa dagana er ég orðin að "yogini" eins og það heitir upp á ensku. Ég er sumsagt farin að stunda jóga á fullu fyrir framan sjónvarpið á morgnana. Ég er sko ekki frá því að það sé að lappa upp á bakið á mér, að minnsta kosti er þetta annar dagurinn í röð þar sem ég finn ekki fyrir stöðugum bakverk =)
Ég keypti nefnilega tvo DVD og eina vídejóspólu á Amazon, með svona jógaæfingum fyrir bakið á manni og svo var annar diskurinn jóga fyrir byrjendur. Þetta er svaka gott svona á morgnana til þess að koma blóðrásinni af stað og teygja úr hryggnum og láta braka aðeins í honum. Verst að ég er búin að vera kvefuð og andstutt og með hor (ekki slef samt), þannig að ég hef ekki alveg getað andað eins og maður á að gera...
Gaurinn sem gerir jógað á diskunum er samt frekar fyndinn. Hann er með svart sítt hár í fléttu og talar svo rólega að það er eins og hann sé að reyna að svæfa mann. Það er eins og það sé skylda hjá jógakennurum að draga seiminn, því kellingin á byrjendadiskinum gerir það líka. Og svo reglulega leggur hann Rodney Yee hendurnar saman fyrir framan sig og segir "Namaste" á mjög tilgerðarlegan hátt, alls ekki eins og Indverjar segja það alla vegana. Mér finnst þetta alveg bráðfyndið, og Mörður hefur gert óspart grín að þessu. Það er líka svo fyndið að vídejóið er tekið upp niðri á strönd á einhverri eyju í Karabíska hafinu. Úff, það væri nú gaman að vera þar!
Þessa dagana ætti sumsagt ekki að koma neinum á óvart að sjá mig í þessari stellingu, eða þá jafnvel þessari hérna.
Annars er ég alveg himinlifandi yfir því að þetta sé að virka, sama þó "sumir" segi að þetta séu bara svona "placebo" effect. Veitir svosem ekki af að fá eitthvað sem virkar núna af því að ég er hætt í sjúkraþjálfun. Guði sé lof fyrir einkavætt heilbrigðiskerfi maður! Tryggingafélagið hætti að borga af því að mér var ekki að batna, hafið þið heyrt annað eins!
Nú held ég að Herdís vinkona sé endanlega farin á hausinn. Hún hringdi í mig frá Íslandi í gær og við spjölluðum saman í tvo klukkutíma! Það var ekkert smá gaman að spjalla við hana, um heima og geima að vanda =)
Við héldum okkur annars bara heima í gærkvöldi, svona bara kósí í faðmi fjölskyldunnar. Reyndar kom upp deilumál, Mörður var ekki mjög hress með að hlusta á Jólahjól alveg í botni, en það var það sem mig langaði að gera. Hann hefur sumsagt ekki gaman að jólalögum =)Þannig að ég hlusta bara á þau í heddfónum í staðinn.
Lagið "Hann verður hjá mér um jólin" er ekki einungis jólalag gærdagsins, heldur lag þessara jóla -í mínum huga alla vegana. Þið skiljið kannski af hverju!