Fimmtudagur, 5 desember, 2002
Snowstorm

Það er allt búið að vera á hvolfi hér í borginni í dag vegna snjókomu. Ég verð nú líka að segja að það snjóaði bara slatta, það hefur snjóað án hléa núna frá því í morgunn og því er allt orðið hvítt.

Þegar ég fór á labbið í morgun var fólk út um allt að henda snjóboltum hvert í annað, en flestir hröðuðu sér þó af mesta mætti í gegnum "bylinn" til þess að komast inn í hlýjuna. Ég brosti bara út í annað og renndi mér fótskriðu og lét snjóa á tunguna á mér.

Vasoo vinkona var alveg himinlifandi, en þetta er í fyrsta skipti sem hún sér alvöru snjókomu, en eins og áður hefur komið fram er hún Indveji. Hún var ekkert smá svekkt í fyrra að það skyldi ekki hafa snjóað meira. Ég spurði hana hvort að hún hafi notað tækifærið og hnoðað snjóbolta og rennt sér fótskriðu, en nei. Hún sagði mér feimin að henni myndi finnast hún líta kjánalega út ef hún gerði það. Spáið í því, hún hefur aldrei hnoðað snjóbolta!

Annars eru allri búnir að vera að býsnast yfir veðrinu í dag, hrylla sig og hrista. Ein vinkona mín ætlaði meðal annars ekki að koma með okkur á barinn í dag af því að hún nennti ekki að labba svona langt í þessu veðri. Svona langt eru tíu blokkir, eða sirka tíu mínútna labb! Og það er ekki eins og það sé vindur eða eitthvað=) En þetta er náttúrulega normalt fyrir svona borgarkrakka sem hafa ekki vanist veðráttu eins og við heima á Fróni.

Við erum sumsagt á leiðinni á "GSAC grad student mixer" á bar sem heitir SoHa (Stytting fyrir South of Harlem, sbr. SoHo). Þar náum við vonandi að skvettta í okkur nokkrum köldum, en fyrst ætlum við að fá okkur pizzu á VandT. Stefnir allt saman í alveg hreint ágætis kvöldstund!

Posted by erna at 07:11 EH
Snjór!

Á dauða mínum átti ég frekar von en snjókomu! Júúúúhúúú!

Ég elska snjó. Kaninn er náttúrulega í algeru áfalli yfir þessu. Skræfur! Ég var að heyra að á aðfaranótt þriðjudagsins mældist lægsti hiti hér í borginni í tvö ár. Og það gengu allir um skjálfandi kvartandi yfir kulda. Það var fjögurra stiga frost yfir daginn. Það var pínu kalt, ég viðurkenni það. Miklu kaldara en í íslenskum mínus fjórum. Það gerir rakinn sko. En hey, það kemur svona veður hér í einn dag og svo er aftur orðið aðeins hlýrra.

Ég fékk náttúrulega ekki að heyra neitt annað en íslendingabrandara og komment á þriðjudaginn. Nicole spurði mig: "Well, Erna, is it cold enough for you outside now?" Ég glotti bara og svaraði: "Yes, I must admit it is quite refreshing out today."

Ég meina verður maður ekki að halda kúlinu sem Íslendingurinn á svæðinu?

Posted by erna at 09:12 FH