Miðvikudagur, 4 desember, 2002
Dýrasögur

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér á labbinu í vikunni vegna þess hvað síðasta vika var afslöppuð, með þeinksgivíng og öðru slæpi.

Ég fór meðal annars síðust heim af labbinu í gær og varð þeim heiðri aðnjótandi að heilsa upp á labbmeðliminn sem fer á stjá á nóttunni þegar róast og dimmir. Þetta var engin önnur en labbmýslan okkar, en ég hef bara heyrt um hana rætt hingað til og var ekki viss um að hún væri í alvörunni til.

Það er nefnilega ekkert svo fágætt að það séu mýs skoppandi um líffræðilöbb svona yfirleitt, því að það eru alltaf viðutan líffræðingar til staðar sem gleyma að loka mýsnar sínar inni, eða þá missa þær úr greipunum fyrir aflífun.

Ég heyrði hins vegar skemmtilega sögu af stelpu sem byrjaði ári á undan mér í náminu, en er hér ekki lengur. Hún var að vinna á labbi "uptown", en það labb vinnur við rannsóknir á Xenopus laevis, sem kallast froskar á íslensku. Labbið er þar að auki í sömu byggingu og eitt sjúkrahús Kólumbíuháskóla. Vinkonan náði einu sinni að missa froskabúr úr höndunum á miðri fæðingardeildinni, og út sluppu nokkur stykki Xenopus froskar stökkvandi og kvakandi, frelsinu fegnir. Hvað daman var að gera með froskana sína á fæðingardeildinni fylgdi ekki sögunni, en ég endurtek, þessi kona er ekki lengur í þessum skóla.

Posted by erna at 06:39 EH