Föstudagur, 29 nóvember, 2002
Kuldi á Þakkargjörðarhátíð

Brrrr...rrrr... Það var pínu kalt í þegar við vöknuðum á hátíð þakklætis og kalkúna hér í borginni sem þykist aldrei sofa. Við byrjuðum daginn á því að rölta í vínbúð niðri á sirka hundrað við Broadway og kaupa vínbirgðir fyrir kvöldið. Einu opnu búðirnar voru vínbúðir og matvöruverslanir.

Veðrið var með besta móti, því að þó að það væri kalt og pínu vindur var líka bjart. Það var líka eitthvað svo mikil ró yfir bænum þannig að ég er búin að vera full kyrrðar og róar í allan dag. Ég toppaði það með því að sofna næstum því við að lesa um slökunarstöðuna savasana í Yoga Journal.

Um fimmleytið rölti ég yfir til Adelene og Chris og hjálpaði þeim við eldamennsku og Mörður kom stuttu síðar. Verkaskiptingin við eldamennskuna var einföld. Chris sá um að ausa soði yfir kalkúninn og krydda hann, ég skar grænmeti og Adelene sá um að blanda öllu saman í dýrindis meðlæti.

Síðustu gestirnir tíndust inn og við spjölluðum yfir rauðvíni á meðan við biðum eftir matnum. Hún er snilldarinnar kokkur hún Adelene, það verð ég að segja. Með kalkúninnum, sem var algert lostæti, sörveraði hún hvítlaukskartöflumús (með hýði, namm...), kalkúnafyllingu með sellerí, bakað grænmeti og heimatilbúið trönuberjahlaup með appelsínubragði. Í eftirrétt fengum við svo hina hefðbundnu graskersböku með ís.

Við sátum frameftir og spjölluðum og drukkum enn meira rauðvín og svo kaffi, sem var kannski ekki svo sniðugt...

Úff, þetta er eins og að hafa tvenn jól á ári! Ég var alveg svona jólasödd eftir matinn. Svo drakk ég allt of mikið kaffi, þannig að ég er enn á fótum þegar Íslendingar eru að vakna í morgunsárið.

Posted by erna at 04:46 FH