Það er ekki mikið fyrir orkunni að fara á þessu heimili í dag. Það var happy hour hjá líffræðideildinni í gær og eftir hann fórum við Mörður heim til Loru, en þar voru fyrir Emily og Adelene, og við sátum að sumbli framundir morgun.
Meðal annars ákváðu vinkonur mínar að þær yrðu að fara til Íslands einhvern tíman, til þess að sjá bjartar nætur og Íslenska reðursafnið, en það var einmitt heimildarmynd um það í fyrradag á HBO. Ég lofaði þeim að ef þær kæmu til Íslands, myndi ég gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að þær kæmust í lundaveislu, fengju að smakka hreindýrakjöt, (nema Lora, hreindýr eru uppáhalds dýrin hennar og hundurinn hennar heitir Rudolph) og auðvitað mysing, súrt slátur, harðfisk og hákarl. Ég vona að ég sé ekki að lofa upp í ermina á mér. Þær spurðu mig líka hvort það væri satt að Ísland væri annar stærsti framleiðandi banana í Evrópu. Vúps, einhver hefur verið að skemmta sér við að segja lygasögur....
Við komum seint heim, en þrátt fyrir það spratt Mörður á fætur eins og gormur klukkan sjö í morgun og fór á Nevada Smiths að horfa á boltann. Það þarf varla að taka það fram að hann er sofandi núna, en ég er að fara á labbið og gefa frumunum mínum að borða... Eftir það ætla ég að gefa kallinum mínum að borða.