Ég fór á fyrirlesturinn hjá John Shulston seinnipartinn í dag, en hann er einmitt nóbelsverðlaunahafinn sem ég var að skrifa um um daginn.
Hann var að gefa út bók og fjallaði fyrirlesturinn um efnið sem hann tekur fyrir í bókinni. Bókin heitir "The Common Thread". Ég veit samt ekki alveg hvað bókin fjallar um, en fyrirlesturinn var frekar lélegur. Bla, bla... það er eins og þegar menn fá nóbelinn þá geti þeir bara sest í dómarasæti gagnvart því sem er að gerast í vísindaheiminum og að allir eigi bara að segja já og amen við því.
Hann varði töluverðu púðri í að tala um það hversu lélegt átak Celera genomics hafi verið, fyrir það fyrsta út af því að þeir seldu upplýsingarnar sem þeir öfluðu, og í öðru lagi fyrir það að þeir hafi aldrei ætlað sér að "klára" að raðgreina erfðamengi mannsins. Klára í merkingunni að fylla í allar eyður í röðinni. Hann var sjálfur yfir Sanger Center sem var stærsta miðstöðin í opinbera raðgreiningarátaki erfðamengis mannsins. Og þar af leiðandi var hann í beinni samkeppni við Celera. Hann talaði bara um það hversu hræðilegt það hefði verið að fá þessa samkeppni, því að þá hafi allir farið að flýta sér og að gögnin í Human Genome Project hafi snarversnað. Hann ætti nú bara að vera pínu þakklátur líka, því ef Craig Venter ásamt Celera hefðu ekki komið fram á sjónarsviðið á sínum tíma, væri raðgreining erfðamengisins varla hálfnuð. Craig Venter var nú ekki svona ómálefnalegur þegar hann hélt fyrirlestur í Columbia í vor.
Svo minntist hann líka á breska gagnagrunninn, sem á að vera keppinautur íslenska gagnagrunnsins (á Heilbrigðissviði=)), og tók það náttúrulega fram að sá breski væri opinn öllum og miklu betri því í honum væru lífsstílsupplýsingar...
Það tók út fyrir allt þegar hann byrjaði að tala um vondu, vondu lyfjafyrirtækin sem væru að fá einkaleyfi á hinum og þessum genum, þannig að aumingja fátæka fólkið í þróunarlöndunum myndi aldrei getað grætt neitt á þessarri erfðafræðivitneskju sem við höfum aflað. Og að þessir illu lyfjarisar skuli voga sér að verja 30% af veltu sinni í markaðssetningu og stjórnun fyrirtækisins...
Ég er reyndar alveg sammála honum um að hún er ekki góð sú staða sem komin er upp í læknavísindum í dag, að enginn rannsakar sjúkdóma eins og berkla og holdsveiki (og svo mætti lengi upp telja), sem hrjá fólk í fátækum löndum. Það er vandamál sem þarf að leysa, en myndin sem Dr. Shulston dró upp var svo brengluð. Ég sé ekki alveg að það eigi eftir að banna eða draga úr einkaleyfum tengdum lækningum, það eru jú þessi einkaleyfi sem eru stór hluti hagnaðarins sem af rannsóknunum hlýst, og þar af leiðandi eru þau eins konar afl sem knýr áfram þekkingarleitina í dag. Og það ekki bara í einkageiranum, því að til dæmis á deildin sem ég er að læra hjá fjölmörg patent.
Ég held að ef John Shulston ætlar að ná árangri í baráttu sinni fyrir opnari upplýsingamiðlun í vísindasamfélaginu, ásamt því að jafna hlut ríkra og fátækra í ávinningni rannsókna, verði hann hins vegar að setja mál sitt fram á málefnalegri hátt, og vara sig á að vera með endalausar ýkjur og rangfærslur.
Ég ætla nú samt ekki að taka jafndjúpt í árinni og einn félagi minn hér í deildinni sem sagði: "What a commie..." um John... Þið getið giskað á hvers þjóðernis sá gaur er.
Hér í New York er búið að vera indian summer undanfarna daga. Hitinn er búinn að vera um 17 gráður á honum selsíus og í dag stefnir allt í tuttugu gráðurnar og þrumur og eldingar og tilheyrandi dramatík.
Ég valdi semsagt algerlega ranga helgi til þess að sitja inni yfir tölvunni að uppfæra heimasíður =( En ég er nú búin að njóta þess að geta trítlað á labbið á stuttermabolnum... Ef það verður ekki farið að rigna seinnipartinn er ég að hugsa um að borða hádegismatinn minn úti. Þvílíkur lúsus!