Föstudagur, 25 október, 2002
Biluð vekjaraklukka...

Vekjaraklukkan okkar hringdi klukkan hálfsjö í morgun eins og henni var uppálagt. Mér var hins vegar svo kalt á fótunum í nótt að ég ætlaði aldrei að sofna, þannig að svo árla í morgun var ég ekki alveg á því að vakna. Þannig að ég ýtti á snústakkann, en ekkert gerðist. Ég ýtti þvínæst á alla takkana sem er að finna á klukkunni, en hún hætti ekki að öskra á mig ömurlegum útvarpsauglýsingum. Ég reyndi þvínæst allar samsetningar af því að ýta á alla takka í einu á klukkunni, en það bara heldur engan árangur. Ég lækkaði því hljóðstyrkinn á klukkunni þannig að ekkert heyrðist, sneri mér á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Ég sem hafði bara ætlað að snúsa í hálftíma og endaði á því að sofa til tíu!

Mér líður hins vegar alveg svakalega vel núna, útsofin og yndisleg =)

Posted by erna at 10:26 FH