Fimmtudagur, 24 október, 2002
Enn af rannsóknarstofunni

Urrrrr... ekki bast prótínið mitt við súluna, og því var lítið til að losa af henni =( Það er eitthvað skrítið í gangi með þetta prótín, þar sem það er með 6 histidine amínósýrum í röð á N-endanum, en binst samt ekki við nikkelhúðuðu agarósaperlurnar á súlunni... En nóg um það.

Það var fundur með Carol í dag, þar sem ég sýndi henni hvað ég er búin að vera að gera, og ég fékk mjög margar góðar ábendingar frá labbfélögum mínum um hvað væri viðeigandi að gera næst hjá mér. Það góða við þessi vandræði er að ég er að læra svaka mikið þessa dagana. Loksins er mér farið að finnast ég vera komin á fullt í hlutina og er farin að njóta þess í botn.

Ég ákvað samt að fara snemma heim í dag og taka því rólega, því að ég er búin að vinna ansi stíft undanfarið. Það er reyndar frekar fyndið, að "snemma heim" hér er svona um fimmleytið. Lora sagði við mig í gær með vott af samviskubiti í röddinni: "Yeah, I even just went home at five yesterday". Fyrir okkur er það svona eins og að fara heim á hádegi fyrir þá sem eru í svona níu til fimm djobbi. En það er ekki af því að það sé verið að pína okkur til þess að vinna alveg ótrúlega mikið, heldur af því að það er frekar erfitt að slíta sig frá labbinu þegar maður er með eitthvað spennandi í gangi. Mér finnst frekar tilgangslaust að hanga heima og horfa á sjónvarpið, þegar ég veit að ég gæti verið að gera eitthvað gagnlegt í verkefninu mínu.

Posted by erna at 06:51 EH