Þriðjudagur, 22 október, 2002
Litagleði

Binni skrifar grein um þeldökkt fólk. Eða réttara sagt heldur hann því fram að það lýsi fordómum hjá Íslendingum að nota orðalagið litað fólk um fólk af öðrum kynþáttum.

Mig langar bara svona að gamni að benda á að það er líffræðilega alveg rétt að tala um litað fólk þegar talað er um til dæmis svertingja og indverja, því líffræðileg forsenda munarins á hörundslitnum er einmitt sú að litað fólk hefur meira af litarefninu melaníni í húð sinni.

Nú hafið þið lesendur góðir sennilega tekið eftir því að ég er ekki mikill tungumála fanatíker. Það kemur því sennilega engum á óvart að mér finnist alveg svakalegur óþarfi að fara að búa til einhver "politically correct" hugtök í íslenskunni. Ef ég segi að einhver sé litaður er ég ekki að lýsa neinum fordómum frekar en ef ég segi að einhver sé dökkhærður.

Það getur hins vegar verið rétt að DV sýni fordóma með því að nota orðalagið í því samhengi sem það gerði, en ég hef ekki séð þá grein.

Í hindí þýðir orð yfir okkur hvítingjana einfaldlega bleikur! Af því að indverjum fannst Evrópubúar mjög bleikir á litinn þegar þeir litu þá fyrst augum. Er ekki bara eðlilegt að orð sem við myndum í okkar máli lýsi því hvernig fyrirbærið sem það lýsir kemur okkur fyrir sjónir, án þess að þurfi að vera nema á yfirborðinu?

Á hinn bóginn finnst mér orðið þeldökkur mjög gott orð og hljómfagurt. Ég hafði einhvern veginn alltaf ímyndað mér að forskeytið þel þýddi húð. Svona lærir maður alltaf eitthvað nýtt.

Ég held hins vegar að við ættum að passa okkur á því að vera ekki að flokka orðin sem við notum í flokka, því að á endanum hlýtur merking þeirra að ráðast af samhenginu.

Posted by erna at 03:51 EH
Vöknuð!!!

Hah.. komin á fætur! En ég snúsaði sko á vekjaraklukkunni frá sex til sjö!!! Nú sit ég og borða kornflexið mitt fyrir framan tölvuna. Ég þarf sennilega að taka nokkur sjortkött í blottinu fram að hádegi vegna seinkunar, en það gerir lítið til.

Mér finnst steiktasta frétt sem ég hef lesið lengi vera að sé Saddam kallinn bara svo ánægður að hafa fengið eitt hundrað prósent atkvæða í kosningunum (ætli hann sé ekki líka bara hissa?) að hann ákvað að verðlauna þjóðina með því að sleppa öllum föngum úr fangelsi. Júhú. Ég væri örugglega í skýjunum ef ég byggi í Írak. Eða þannig. Aumingja fólkið að þurfa að búa við dynti þessa geðsjúklings.

Posted by erna at 07:41 FH